fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Íslensk erfðagreining skimar ekki ef ekki verður gripið til hertra aðgerða

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 29. júlí 2020 07:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru stjórnvöld að skoða hvort herða eigi samkomutakmarkanir og innleiða tveggja metra regluna á nýjan leik. Um hádegisbil í dag munu niðurstöður úr raðgreiningu Íslenskrar erfðagreiningar á tveimur innanlandssmitum frá í gær væntanlega liggja fyrir. Ef þau smit reynast hafa sama mynstur og veiran í tilfelli flestra í nýuppkominni hópsýkingu þýðir það að aðgerðir verða hertar. Ef þetta verður niðurstaðan bendir það til að hinir smituðu hafi smitast af sömu umferð veirunnar og í öðrum tilfellum en án þess að hafa hitt hina sem hafa greinst með smit. Það gefur þá til kynna að samfélagssmit sé mun útbreiddara en vitað er.

Morgunblaðið skýrir frá þessu og hefur eftir Jóhanni K. Jóhannssyni, samskiptastjóra almannavarna, að fundað verði þegar niðurstöður liggja fyrir og þá verði ákveðið hvort gripið verði til hertra aðgerða.

Nú er vitað um 24 virk smit hér á landi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að þar sem ekki hefur tekist að rekja sameiginlegan uppruna þeirra geti útbreiðsla veirunnar í samfélaginu verið mikil. Hann telur ljóst að grípa þurfi til hertra aðgerða.

„Ef heilbrigðisyfirvöld ákveða að breyta engu þrátt fyrir þetta, þá verðum við ekki með í leiknum. Þetta er ekki ástand sem býður upp á að standa hjá og horfa á.“

Hefur Morgunblaðið eftir honum.

Slæmt hópsmit á Akranesi

Á Akranesi eru sjö erlendir verkamenn smitaðir en þeir búa og vinna saman. Ekki hafa greinst fleiri smit á Akranesi en sýni voru tekin úr nærumhverfi mannanna. Einn þeirra hefur veikst en hinir hafa sýnt lítil einkenni.

Kári Stefánsson sagði í gær að tveir verkamannanna hefðu verið með sérstaklega mikið af veirunni og því mjög smitandi. Hann segist óttast að það sama geti átt við um fleiri sem veikjast í þessari hópsýkingu.

Vegna þessa hópsmits byrjar Íslensk erfðagreining slembiúrtaksskimun á hádegi í dag en ekki liggur enn fyrir hversu umfangsmikil hún verður.

„Ef heppnin er með okkur lítur þetta bara ógnvekjandi út og við getum slökkt á þessu í einum grænum hvelli. Ég vona svo sannarlega að svo sé. En eins og stendur finnst mér jafnmiklar líkur á að þetta hafi farið víða og þetta sé enn einangrað á þessum stöðum.“

Hefur Morgunblaðið eftir Kára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“