
Í huga og eyrum sumra er þetta kannski eins og æsandi kynferðislegt tal en könnun sem var gerð af kynfræðslusíðunni OMGYES leiddi í ljós að flestar konur taka þessari spurningu ekki fagnandi. 20.000 manns tóku þátt í könnuninni.
„Sú spurning sem drepur fullnæginguna hjá mér er: „Færðu það fljótlega?“ því þá taka hugsanirnar völdin, til dæmis: „Tekur þetta of langan tíma hjá mér?“, „Leiðist honum?“ og þessa hugsanir trufla mig og fullnægingin hverfur bara,“ sagði ein kvennanna sem tóku þátt í rannsókninni.
„Það er kannski ekki ætlunin en með að spyrja „Ertu að fá það?“ getur þú sett pressu á konuna á röngu augnabliki,“ sagði Annabelle Knight, kynlífssérfræðingur, í samtali við Metro og benti á að slík spurning beini athygli konunnar að frammistöðu og tímasetningu í stað þess að hún geti notið stundarinnar.
„Hjá mörgum konum, byggist örvunin upp hægt og rólega og þarfnast öryggis og rýmis, svo að vera spurð ef hún sé „nálægt“ getur skilist eins og verið sé að reka á eftir henni frekar en að styðja hana í hennar eigin ryþma“.