fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Ráðherrar skála fyrir Hafró í Hafnarfirði

Tobba Marinósdóttir
Mánudaginn 8. júní 2020 09:04

Kristján Loftsson, Jón Rúnar Halldórsson, Bjarni Benediktsson og Kristján Arason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vígði rétt fyrir helgi nýjar höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Forsetinn mætti á skipi til Hafnarfjarðar en hann tók sér far með skipalest sem fór í sérstaka vígslusiglingu af þessu tilefni frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Í skipinu voru auk forseta Ísland, starfsfólk Hafró,  sjávarútvegsráðherrann Kristján Þór Júlíusson, Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins, og Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar.

Í fréttatilkynningu um málið segir að tilgangurinn með vígslusiglingunni hafi verið meðal annars að hnykkja á mikilvægi rannsóknarskipanna en útgerð þeirra er einn af meginþáttunum í starfi Hafrannsóknastofnunar. Guðni fékk á leiðinni kynningu á tækjum og tólum um borð og ræddi við áhafnarmeðlimi. Þá nýtti forsetinn tækifærið, um miðja vegu siglingarinnar, til að virða fyrir sér bústað sinn á Bessastöðum á Álftanesi utan af sjó. Bað hann Kristján H. Kristinsson, yfirstýrimann á Árna Friðrikssyni, um að lána sér kíki til verksins, sem var auðsótt mál.

Forsetinn klippti á fánaborða á landganginum við Háabakka

Eftir að skipin lögðust að nýjum hafnarbakka stofnunarinnar, Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn, klippti forsetinn á fánaborða sem strengdur var fyrir landganginn og gekk svo ásamt starfsfólki Hafró að nýju höfuðstöðvunum. Forsetinn, sjávarútvegsráðherra, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og forstjóri Hafrannsóknarstofnunar fluttu því næst stutt ávörp og þess á milli spilaði Lúðrasveit Hafnarfjarðar og einnig söng karlakórinn Þrestir nokkur lög. Fjöldi gesta hlýddi á en á meðal þeirra voru Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Einnig mátti sjá marga þingmenn, bæjarfulltrúa, fyrrum stjórnmálamenn og forystufólk úr sjávarútvegi og atvinnulífinu.

Eftir að Jón Rúnar Halldórsson, framkvæmdastjóri Fornubúða, fasteignafélagsins sem stóð að byggingu höfuðstöðvanna, hafði afhent Sigurði H. Guðjónssyni forstjóra Hafró lyklana að nýju höfuðstöðvunum, bauðst gestum að skoða húsnæðið og njóta veitinga undir spili lúðrasveitarinnar.

Höfðu verið í Sjávarútvegshúsinu sl. 55 ár
Eftir flutningana er starfsemi Hafrannsóknastofnunar á höfuðborgarsvæðinu loks komin á einn stað en áður voru höfuðstöðvar stofnunarinnar í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4 og geymslur og skemmur við Grandagarð. Þess má geta að Hafrannsóknarstofnun hefur haft sitt aðsetur í Sjávarútvegshúsinu allt frá stofnun árið 1965.

Stærsta timburhús landsins
Stefna Hafró er að vera eins umhverfisvæn stofnun og mögulegt er og því var ákveðið að byggja nýja húsið úr timbri. Notast var við svokallaðar krosslímdar tréeiningar sem voru fluttar inn frá Austurríki. Húsið er 4.100 fermetrar að stærð og fimm hæða og þar með stærsta timburhús landsins.
Mötuneyti og fundarsalir eru á jarðhæðinni og rannsóknarstofur á þeirri annarri. Þrjár efstu hæðirnar fara að mestu undir skrifstofur en Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna hefur einnig aðstöðu í húsinu. Þá verður geymsla, verkstæði og útgerðaraðstaða í um 1.440 m² eldri byggingu, segir enn fremur í tilkynningunni.

Í gær fékk svo almenningur svo að skoða húsið, í tengslum við hátíðarhöld vegna sjómannadagsins í Hafnarfirði.

Sigurður Ingi Jóhannesson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Árni Sigurjónsson formaður Samtaka iðnaðarins og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar bauð Hafró velkomið í bæinn

Sigurður Guðjónsson forstjóri Hafró og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður

 

Hallur Helgason, Jón Rúnar Halldórsson og Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðni ræðir við Bjarna Sveinsson háseta á stíminu út Faxaflóa
Guðni með Kristján Þór Júlíussyni og Sigurði Guðjónssyni forstjóra Hafró
Bjarni Sæmundsson leggur að Háabakka
Gengið um borð í Reykjavíkurhöfn
Sjávarútvegsráðherra, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins og forstjóri Hafró ganga í fylkingarbrjósti starfsfólks
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu