fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Lilja Katrín ráðin ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 16. maí 2019 10:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.,  sem m.a. á og rekur DV og dv.is. Lilja er annar tveggja ritstjóra sem ráðnir verða til félagsins.

Lilja Katrín hefur starfað í fjölmiðlum síðustu fimmtán árin. Hún hóf ferilinn á Fréttablaðinu og hefur meðal annars verið ritstjóri Séð og Heyrt, umsjónarmaður innblaðs Fréttablaðsins og Lífsins á Vísi og vefstjóri Mannlífs. Þá hefur hún einnig unnið sem dagskrárgerðarkona í Íslandi í dag og starfað sem kynningarstjóri framleiðslufyrirtækisins Sagafilm. Hún er með BA gráðu í leiklist fyrir sjónvarp og kvikmyndir og hefur leikið í sjónvarpi, talsett auglýsingar, skrifað handrit að gamanþáttum og samið einleik. Lilja mun vinna náið með Guðmundi Ragnari Einarssyni, markaðs- og þróunarstjóra DV, að þróun DV og undirmiðla.

Einar Þór Sigurðsson verður áfram aðstoðarritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.

„Það er mikill fengur fyrir félagið að fá Lilju Katrínu í ritstjórastólinn,“ að sögn Karls Garðarssonar framkvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. Bæði sé hún reynslumikil í fjölmiðlum og hafi skýra sýn á hvert skuli stefna með miðla félagsins. „Við bjóðum hana velkomna til starfa, en framundan eru spennandi tímar hjá félaginu,“ segir Karl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“