fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Íslandsferðin breyttist í martröð – Afskræmd í andliti eftir árás við Hallgrímskirkju

Auður Ösp
Föstudaginn 25. janúar 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér finnst að allur heimurinn megi fá að vita hversu óábyrg íslensk yfirvöld eru. Það er hneykslanlegt að yfirvöld á Íslandi séu ekki að gera neitt til að vernda sinn helsta og mikilvægasta atvinnuveg, sem er ferðamannaiðnaðurinn. Síðan er verið að auglýsa Ísland sem „öruggasta land í heimi,“ segir hin bandaríska Alisa Kreynes í samtali við DV, en hún og vinir hennar urðu fyrir tilefnislausri flugeldaárás við Hallgrímskirkju á nýársnótt á seinasta ári. Ókunnur einstaklingur skaut flugeldum inn í hóp fólks sem hafði komið saman fyrir utan kirkjuna til að fylgjast með flugeldadýrðinni. Alisa og fimm aðrir úr hópnum hlutu margvísleg brunasár en Alisa gagnrýnir harðlega viðbragðsleysi lögreglu og yfirvalda hér á landi.

Í áfalli

DV hefur undir höndum tölvupóst sem Alisa sendi Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra þann 4. janúar 2018, en í bréfinu lýsir hún atburðarás kvöldsins og eftirmálum. Í samtali við blaðamann kveðst Alisa hafa verið stödd í fríi hér á landi ásamt vinum sínum. Á gamlárskvöld ákvað hópurinn að fara upp að Hallgrímskirkju til að fylgjast með flugeldunum.

„Um það leyti sem klukkan sló tólf á miðnætti þá henti einhver flugeldi/sprengiefni að hópnum. Fimm af vinum mínum urðu fyrir árásinni og hlutu bruna á fatnaði og hári. Ég varð fyrir skaða í andliti og hlaut alvarleg brunasár á eyrum, nefi og augum.“

Afleiðingar árásarinnar voru þær að Alisa hlaut annars til þriðja stigs bruna í andliti, sprunga hljóðhimnu og sár við augað. Hún óttast að áverkanir séu varanlegir, og bendir á að kostnaðurinn við lýtaaðgerðir sé himinhár. Ljósmynd/ Úr einkasafni

Alisa segir að nokkur vitni séu að árásinni og allir þeir einstaklingar hafi staðfest að gerandinn hefði verið fullorðinn einstaklingur. „Á meðan árásin átti sér stað þá flúðu nærstaddir. Það var engin lögregla og engin öryggisgæsla sjáanleg og við þurftum sjálf að sjá um að koma okkur í burtu af staðnum.“

Alisa segir hópinn hafa flúið inn á veitingastaðinn Snaps og beðið starfsfólk staðarins um að hringja á sjúkrabíl.

„Lögreglan mætti síðan á staðinn. Þeir skráðu niður persónuupplýsingarnar mínar af ökuskírteininu mínu og horfðu á andlitið á mér, sem var afskræmt, en samt minntust þeir ekki einu sinni á það að fylla út skýrslu. Við sögðum þeim hvað hefði gerst og þrátt fyrir að þetta hafi augljóslega verið saknæmur verknaður þá fengum við engin viðbrögð frá þeim. Þeir sögðu að þetta væri „mjög skrítið“, en skrifuðu ekkert meira niður, fyrir utan það hvenær símtalið barst frá Snaps og upplýsingarnar sem komu fram á ökuskírteininu mínu.“

Hún segir lögregluna því næst hafa  hringt á sjúkrabíl og í kjölfarið var henni vísað á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. „Á bráðamóttökunni voru áverkarnir meðhöndlaðir með vaselíni og svo fékk ég uppáskrifuð sýklalyf og krem við bleyjuútbrotum. Hjúkrunarfræðingurinn sem sinnti mér var læknanemi. Ég þurfti síðan að greiða 45 þúsund krónur fyrir sjúkrabílinn og 62 þúsund krónur fyrir læknisskoðunina og síðan var ég útskrifuð. Þetta var um hálf tvö leytið á nýársnótt. Við erum öll í áfalli yfir því hvað við fengum lélega aðhlynningu, en það er önnur saga.“

Varanleg lýti

Hún kveðst hafa hringt í 112 daginn eftir og beðið um að fá samband við lögregluna til þess að tilkynna um atvikið.

„Á þessum tímapunkti, þá voru allir í hópnum með brunaáverka en misalvarlega, annaðhvort á líkamanum eða í fötum. Við sáum það öll þegar flugeldarnir koma að okkur frá einni hlið og tveir úr hópnum sáu að það var karlmaður sem skaut þeim í átt að okkur. Þetta var augljóslega glæpur, og þetta hefði getað endað ennþá verr eða jafnvel valdið dauðsfalli. Það voru lítil börn sem stóðu þarna rétt hjá okkur. Hvað ef eitthvert þeirra hefði dáið?“

Alisa segir lítið hafa verið um svör hjá Neyðarlínunni. Henni hafi verið bent á að leita til lögreglu að loknu jólafríi, þann 5. janúar. „Við erum furðu lostin yfir því hvað við fengum lítil viðbrögð, miðað við hversu alvarlegt atvik var um að ræða.“

Hún kveðst einnig hafa reynt að ná sambandi við skrifstofu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en án árangurs. Á leiðinni heim til New York hafi hún síðan lent á spjalli við starfsmann landamæraeftirlitsins í Leifsstöð. „Hann sagði mér þá að hann hefði sjálfur verið staddur við Hallgrímskirkju þegar þetta gerðist, og séð manninn sem henti flugeldunum að hópnum.“

Afleiðingar árásarinnar voru þær að Alisa hlaut annars til þriðja stigs bruna í andliti, sprunga hljóðhimnu og sár við augað. Hún óttast að áverkarnir séu varanlegir, og bendir á að kostnaðurinn við lýtaaðgerðir sé himinhár. „Hingað til þá hefur Íslandsferðin kostað mig yfir 3 þúsund dollara í lækniskostnað, auk þess sem ég gat ekki sinnt vinnu í rúmlega þrjár vikur,“ segir Alisa en hún starfar sjálfstætt við viðskiptaþróun og almannatengsl.

Hún segir hópinn vera í áfalli vegna málsins. Þau vilja síst af öllu heimsækja Ísland aftur.

„Ég er bara algjörlega gáttuð á þessu viðbrögðum og þessu ábyrgðarleysi. Þetta er fyrir neðan allar hellur.“

Samkoman við Hallgrímskirkju ekki á vegum borgarinnar

DV hefur einnig undir höndum tölvupóst sem Alisa sendi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara þann 8. janúar. Í bréfinu vekur hún athygli á atvikinu, gagnrýnir skort á viðbrögðum lögreglu og spyr hvert hún geti leitað vegna málsins.

Í svarbréfi Theódóru Sigurðardóttur, lögfræðings hjá embættinu, kemur meðal annars fram að samkoman við Hallgrímskirkju á gamlárskvöld sé ekki á vegum Reykjavíkurborgar. Engu að síður hafi verið gripið til öryggisráðstafana, til dæmis með því að takmarka umferð bíla um svæðið. Þá hafi íbúum á svæðinu verið úthlutað afmörkuðu svæði til þess að skjóta upp flugeldum, í hæfilegri fjarlægð frá áhorfendahópnum við Hallgrímskirkju. Þá hafi öryggisgleraugum verið dreift, ásamt upplýsingabæklingum.

Þá segir í svarbréfinu að umrætt atvik hafi verið embættinu hvatning til þess að „leggja enn harðar að sér við að gera gamlárskvöld í Reykjavík ánægjulegt fyrir alla.“ Þá kemur fram að áhyggjum varðandi öryggismál á svæðinu hafi verið komið á framfæri við lögreglu. Einnig kemur fram að afrit af tölvupósti Alisu hafi verið sent á Áshildi Bragadóttur, forstöðumanns Höfuðborgarstofu, Hjalta Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóra skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins, Hilmar Hildar Magnúsarson verkefnastjóra alþjóðamála, og Sæunni Ósk Unnsteinsdóttur, verkefnastjóra miðborgarmála.

Alisa svarar umræddum tölvupósti og segist undrast að ekki hafi verið til staðar löggæsla þetta kvöld þar sem um var að ræða mikinn mannfjölda. Þá spyr hún jafnframt hvers vegna verið sé að dreifa öryggisgleraugum þegar fólk standi langt í burtu frá því svæði þar sem flugeldunum er skotið upp.

Þá ritar hún að lokum:

„Ég hef enga ástæðu til að trúa því að málið hafi verið kannað. Árásarmaðurinn sem eyðilagði líf mitt til langs tíma fær að halda áfram með sitt daglega líf eins og ekkert hafi í skorist.“

Alisa hefur einnig látið DV í té tölvupóst sem henni barst frá nefnd um eftirlit með lögreglu þann 6.júlí síðastliðinn. Segir í bréfinu að nefndinni hafi borist erindi frá ríkislögreglustjóra þann 11.janúar 2018.

„Það eina sem ég fékk sent frá nefndinni var innihaldslaust bréf þar sem kom fram að það væri ekki talin ástæða til þess að kanna málið nánar. Það var ekkert gert.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni

Heiðar tjáir sig um Kveiksmálið og segir engin annarleg sjónarmið búa að baki ákvörðuninni
Fréttir
Í gær

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“

Sverrir tjáir sig um handtökuna – „Hissa á þessu leikriti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“