fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Styrktarlottó fyrir Kolfinnu Rán er hafið – Greindist fyrst með krabbamein 2 og hálfs árs

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. júní 2026 10:57

Kolfinna Rán Færseth

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Kolfinna var fyrst greind með krabbamein tveggja og hálfs árs og gekk í gegnum sex mánaða lyfjagjöf og fór í yfir þrjátíu geisla. Hún var svæfð í öllum geislunum, frá mánudegi til föstudags, svo var frí um helgar og hún vinnur það, enda algjör nagli,“ segir Hólmfríður Magnúsdóttir fyrrum atvinnukona í fótbolta í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á mánudag.

Stendur hún nú fyrir styrktarlottói fyrir Kolfinnu Rán Færseth, 13 ára, og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Í boði eru 165 vinningar, þar á meðal árituð treyja frá Glódísi Perlu Viggósdóttur, fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins.

Eins og DV greindi frá föstudag mun allur ágóði renna í framtíðarsjóð fyrir Kolfinnu Rán.

Sjá einnig: Kolfinna Rán 13 ára glímir við krabbamein – Safnað í framtíðarsjóð með styrktarlottói

„Nú síðasta sumar greindist hún aftur og byrjaði í lyfjameðferð, alls átta lyfjameðferðir, og fór síðan til Svíþjóðar í aðgerð. Þar var tekinn stór hluti af lærleggnum, allt upp að mjaðmakúlunni var fjarlægt og í staðinn var settur sérsmíðaður íhlutur sem var framleiddur í Þýskalandi.“

Fyrir nokkrum vikum fór Kolfinna í myndatöku þar sem punktur fannst á lunganu sem fjarlægja þurfti með aðgerð. Segir Hólmfríður Kolfinnu hafa sýnt mikla seiglu í veikindum sínum.

Styrktarlottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Miðinn kostar 2500 krónur.

Reikningsnúmer: 0511-14-120390

Kennitala: 200984-2859

Vinninga má sjá hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“
Fréttir
Í gær

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“