fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Nýtt myndband á sveimi í Rússlandi – „Stöðvið stríðið. Ekki kjósa Pútín.“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 18. janúar 2024 14:30

Mótmælendur og liðhlaupar eru ekki teknir neinum vettlingatökum í Rússlandi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá í morgun eru vísbendingar um að þreytu sé farið að gæta hjá rússnesku þjóðinni vegna stríðsreksturs landsins gegn Úkraínu sem staðið hefur yfir í tvö ár.

Sjá einnig: Vaxandi stríðsþreyta meðal Rússa

Sænska ríkissjónvarpið, SVT, hefur greint frá því að nýtt myndband sé í dreifingu í Rússlandi á samfélagsmiðlinum Telegram. Myndbandið mun hafa verið sett í loftið vegna forsetakosninga sem standa fyrir dyrum í Rússlandi í mars næstkomandi. Í myndbandinu er fólk hvatt til þess að greiða atkvæði gegn stríðinu með því að veita ekki Vladimir Pútín Rússlandsforseta atkvæði sitt. Hægt er að sjá myndbandið í frétt SVT.

Það er fréttastöðin Nexta sem birti myndbandið á Telegram en þar hefur stöðin eina milljón fylgjenda. Ætlunin er greinilega að hafa áhrif á hvernig rússneskir kjósendur ráðstafa atkvæði sínu í kosningunum í mars.

Fyrrverandi fréttamaður SVT í Rússlandi, Bert Sundström, spáir því að fleiri slík myndbönd eigi eftir að skjóta upp kollinum í aðdraganda kosninganna. Hann segir að búast megi við bæði myndböndum með stuðningsyfirlýsingum við Pútín og myndböndum þar sem forsetinn er gagnrýndur. Samfélagsmiðlar séu árangursríkur vettvangur fyrir slík myndbönd bæði innan og utan Rússlands.

Nexta var sett á laggirnar í Belarús árið 2015 en var bönnuð af stjórnvöldum og stofnendur og starfsmenn stöðvarinnar neyddust til að flýja land. Ritstjórnarskrifstofur stöðvarinnar eru nú í Varsjá í Póllandi og hún er einn stærsti fjölmiðillinn á rússnesku sem er rekinn utan Rússlands og Belarús.

Nexta gefur ekki upp hvaða aðilar stóðu að gerð myndbandsins.

Bert Sundström segir að myndbandið sé vel gert en á ekki von á því að það muni hafa mikil áhrif á almenningsálitið í Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ók drukkinn og á ofsahraða þegar banaslysið varð – Nú er búið að kveða upp dóm í málinu

Ók drukkinn og á ofsahraða þegar banaslysið varð – Nú er búið að kveða upp dóm í málinu
Fréttir
Í gær

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“