fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 20. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa manni, sem er albanskur ríkisborgari, frá landinu. Skýringar mannsins á ferðatilhögun sinni þóttu ótrúverðugar en það þótti ýta enn frekar undir ótrúðverðugleikann að maðurinn hafði í síma sínum svör frá gervigreind um hvernig hann ætti að svara spurningum lögreglu um ferðir sínar.

Manninum var vísað frá landinu í nóvember 2025 en hann kærði ákvörðunina daginn eftir en sama dag fór hann úr landi.

Í samantekt lögreglunnar kom fram að daginn sem maðurinn kom til landsins hafi henni borist símtal frá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Tollvörðum hafi þótt ferðasaga mannsins undarleg og óskað eftir aðstoð lögreglu.

Lögregla tók þá yfir viðræður við manninn. Hann hefði sagst ætla að dvelja í þrjá daga á Íslandi og framvísað flugbókun til Mílanó 13. nóvember 2025 og hótelbókun hér á landi. Hann hafi verið með 1.085 evrur í reiðufé.

Sagan

Aðspurður hefði maðurinn sagt tilgang ferðar sinnar vera að skoða eldfjall, Bláa lónið, hvali og miðbæ Reykjavíkur en hann hefði enn ekki bókað neina afþreyingu hér á landi. Hefði maðurinn sagst ekki hafa komið áður til Íslands og ekki þekkja neinn hér á landi. Sagði lögregla að maðurinn hefði sagst ætla sér mögulega að leigja bílaleigubíl eða koma sér á milli staða með leigubíl eða rútu. Þá hefði hann sagst vera að íhuga að finna einhvern til að ferðast með sér, svo sem ef hann myndi kynnast íslenskri stelpu.

Hefði hann því næst greint frá því að ætla sér að skoða Reykjavík og að hann hafi gleymt að minnast á kirkjuna fyrr í samtalinu. Hann væri ekki með sundföt meðferðis vegna ferðar sinnar í Bláa lónið en ætlað að kaupa sér sundföt hér á landi ef hann þyrfti. Þá hefði hann greint frá því að ætla að skoða eldfjall sem hafi ekki gosið í nokkur ár og talið að það kostaði 180-200 evrur að fara að eldfjallinu.

Hann hafi ekki getað nefnt eldfjallið á nafn en sagst munu finna það með aðstoð staðsetningarforrits. Maðurinn hafi verið klæddur í strigaskó og einungis verið með bakpoka meðferðis. Hann hafi ekki verið með skó til skiptanna og hafi spurt hvort leiðsögumenn gætu ekki útvegað honum búnað.

Gervigreind

Lögregla sagði manninn hafa þá framvísað nokkuð ítarlegri ferðaáætlun sem hann hafi útbúið með gervigreind en þar hafi hvorki komið fram Bláa lónið eða eldfjall en hins vegar komið fram Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Sky Lagoon o.fl. Þar hafi einnig komið fram leiðbeiningar um hvernig hann ætti að svara nánari spurningum um ferðaáætlun sína. Aðspurður hafi maðurinn sagt þetta vera leiðbeiningar ef hann yrði spurður nánar út í ferðasögu sína af lögreglu.

Sagði lögregla að lokum í samantekt sinni að þar sem tilgangur ferðar mannsins hafi þótt ótrúverðugur vegna þess að ferðaáætlun hans innihélt leiðbeiningar um hvernig svara ætti spurningum um ferð hans, auk þess sem fatnaður og farangur hafi ekki verið í samræmi við áætlanir hans, hafi verið tekin ákvörðun um að frávísa honum frá landinu á grundvelli laga um útlendinga. Maðurinn hafi farið með flugi til Mílanó daginn eftir.

Rök

Í kæru mannsins kom meðal annars fram að ákvörðunin væri órökstudd og rannsóknarregla stjórnsýslulaga hafi ekki verið uppfyllt. Sömuleiðis hafi skort á það að lögreglan á Suðurnesjum hafi uppfyllt leiðbeiningarskyldu sína gagnvart manninum.

Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála segir að þegar litið sé til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar mannsins hér á landi og þess að ekkert bendi til þess að hann hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verði ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar hans.

Misræmi

Maðurinn hafi lagt fram nokkuð ítarlega ferðaáætlun sem hann hafi ekki getað gert nánari grein fyrir við afskipti lögreglu, auk þess sem frásögn hans hafi tekið breytingum eftir því sem málinu vatt fram. Við mat á því hvort ferðaáætlun teljist trúverðug og veiti fullnægjandi grundvöll fyrir tilgangi dvalar þurfi að taka mið af öðrum atvikum máls. Almennt verði að gera þá kröfu að útlendingur hafi ákveðna  grunn þekkingu á þeirri ferðaáætlun sem hann byggi ferð sína á.

Misræmi í frásögn mannsin um tilgang ferðar hans, svo sem varðandi eldfjall og fyrirætlanir hans um útivist í nóvember á Íslandi geri tilteknar kröfur til búnaðar, svo sem hlífðarfatnaðar. Ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýnt hafi fram á samgöngur innanlands svo sem skipulagðar ferðir eða leigu á bílaleigubifreið. Þá dragi úr trúverðugleika mannsins að ferðaáætlun hans hafi innihaldið leiðbeiningar um hvernig ætti að svara spurningum um ferð hans hingað til lands. Framburður mannsins sé þar af leiðandi óáreiðanlegur. Hafi hann því ekki fært rök fyrir þeim tilgangi sem hann hann hafi gefið upp fyrir dvölinni. Hafi þar af leiðandi skilyrði til frávísunar á grundvelli laga um útlendinga verið uppfyllt og sé ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum staðfest.

Nefndin segir að lögreglan á Suðurnesjum hafi uppfyllt leiðbeiningarskyldu sína gagnvart manninum en skort hafi á rökstuðning og að því leyti hafi ákvörðunin ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög. Sá annmarki á frávísuninni sé þó ekki slíkur að það valdi ógildingu hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“