fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Nauðgaði eiginkonunni margoft – Fékk aðra karla til að nauðga henni

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. júlí 2021 06:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

36 ára karlmaður var í vikunni dæmdur í sjö ára fangelsi af dómstól í Sønderborg í Danmörku. Hann var ákærður fyrir að hafa ítrekað nauðgað eiginkonu sinni, sem er andlega fötluð, og að hafa fengið aðra menn til að nauðga henni.

Að auki var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa nauðgað fyrrum eiginkonu sinni þrisvar sinnum þegar þau voru gift en það ofbeldi átti sér stað 2010. Saksóknari krafðist sjö til átta ára fangelsis yfir manninum og dómari dæmdi hann í sjö ára fangelsi. Maðurinn áfrýjaði dómnum samstundis til Vestri Landsréttar en hann hefur haldið fram sakleysi sínu frá upphafi. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í rúmt ár.

Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla notaði maðurinn stefnumótasíðu til að komast í samband við fjölda karla sem hann fékk til að nauðga eiginkonu sinni. Vegna andlegrar fötlunar sinnar var hún ekki fær um að veita viðnám eða mótmæla og því var um nauðgun að ræða samkvæmt lögum. Maðurinn tók stundum sjálfur þátt í ofbeldinu með öðrum körlum. Hann er sagður hafa útbúið leiðbeiningabækling um hvernig ofbeldið ætti að fara fram og birt á Internetinu.

Ofbeldið stóð yfir í mörg ár og á sama tíma beitti maðurinn konuna margvíslegu ofbeldi, bæði andlegu og líkamlegu, og var hann einnig sakfelldur fyrir það.

Maðurinn var fundinn sekur um flest þeirra níðingsverka sem hann var ákærður fyrir en hann var sýknaður af ákæru um að hann hefði þvingað konuna í ófrjósemisaðgerð.

Karlarnir, sem maðurinn fékk til að nauðga konu sinni, voru ekki ákærðir þar sem ákæruvaldið taldi þá ekki hafa haft ásetning um að nauðga konunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast

Sagan sem snart heimsbyggðina – Robbie Middleton má aldrei gleymast
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést

„Pabbi minn gerði þetta og hann gerði það viljandi,“ var það seinasta sem 12 ára drengurinn sagði áður en hann lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“

Musk er aftur byrjaður að urða yfir fjárlagafrumvarp Trump – „Þetta er algjörlega sturlað“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni