fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans

Pressan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 14:30

Screenshot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alríkislögreglumenn FBI munu vera uggandi eftir að yfirmaður þeirra, Kash Patel, skipaði þeim að rannsaka meintan leika í tengslum við fréttaflutning The Atlantic. Um er að ræða frétt þar sem miðillinn vitnaði í rúmlega 12 heimildarmenn sem allir greindu frá óhóflegri áfengisdrykkju Patels sem var sögð hafa áhrif á starf hans.

Patel vill hafa uppi á þessum heimildarmönnum og á rannsóknin bæði að fara fram innanhúss hjá FBI sem og að beinast gegn blaðamanninum á bak við fréttina, Söruh Fitzpatrick. Að sögn MS NOW eru ekki allir lögreglumennirnir, sem hefur verið falið að rannsaka málið, ánægðir með að þurfa að rannsaka blaðamann þegar augljóst sé að það sé gert til að hefna fyrir fréttaflutning.

„Þeir vita að þeir ættu ekki að vera að því,“ sagði einn heimildarmaður. „En ef þeir hlýða ekki gætu þeir misst vinnuna. Voðinn er vís, sama hvað.“

Talsmaður FBI þvertekur þó fyrir að rannsókn sem þessi sé í gangi.

„Þetta er bara alfarið rangt. Engin slík rannsókn er í gangi og blaðamaðurinn sem þú nefnir er ekki andlag nokkurrar rannsóknar. Í hvert einasta skipti sem bent er á falskan fréttaflutning sem byggir á nafnlausum heimildarmönnum fara fjölmiðlar í fórnarlambsgírinn vegna meintra rannsókna sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.“

Ritstjóri The Atlantic, Jeffrey Goldberg, hefur brugðist við fréttum af meintri rannsókn og segir að ef satt reynist þá sé hérna um yfirgengilega aðför að fjölmiðlafrelsi að ræða.

„Við munum verja The Atlantic og starfsmenn miðilsins af festu; við látum ólögmætar rannsóknir eða aðrar pólitískar hefndaraðgerðir ekki hræða okkur; við munum áfram fjalla með faglegum hætti um FBI og gera það af sanngirni og nákvæmni; og við munum halda áfram að sinna fjölmiðlun í þágu almennings.“

Seth Stern, forstjóri samtaka um fjölmiðlafrelsi, birti yfirlýsingu í gær þar sem hann kallaði rannsóknina sturlaða.

„Slík rannsókn yrði galin jafnvel þó að The Atlantic hefði fjallað um ríkisleyndarmál, sem miðillinn gerði þó ekki. Sagan segir að FBI sé nú að hefja íþyngjandi lekarannsókn í þeim eina tilgangi að fullnægja persónulegum hefndarþorsta. Það er auk þess órökrétt að Patel láti FBI rannsaka leka vegna fréttaflutnings sem Patel segir sjálfur að byggi á gerviheimildarmönnum. Gerviheimildarmenn geta engu lekið.“

Stern tekur fram að þetta sé í annað sinn á frekar stuttum tíma sem FBI er beitt gegn blaðamönnum sem hafa fjallað um Patel með gagnrýnum hætti. Blaðamaðurinn Elizabeth Williamson hafi verið rannsökuð eftir að hún greindi frá því að Patel hafi notað einkaþotur lögreglunnar til að skutla kærustu sinni. Fyrir vikið ákvað FBI að rannsaka hvort blaðamaðurinn hefði verið að beita kærustu Patels umsáturseinelti.

Það var svo í janúar sem FBI haldlagði raftæki í eigu blaðamanns Washington Post vegna fréttaflutnings blaðamannsins Hannah Natanson, en Natanson hlaut nú á mánudaginn hin virtu Pulitzer-verðlaun fyrir fréttaflutning um fjöldauppsagnir á vegum hagræðingardeildarinnar DOGE. FBI ætlaði að rannsaka raftæki blaðamannsins til að leita að sönnunargögnum um meint brot kerfisfræðings sem hefur verið sakaður um að leka trúnaðarupplýsingum.

Sarah Fitzpatrick er hvergi af baki dottin og birti í gær aðra frétt um Patel. Að þessu sinni greindi hún frá því að forstjóri FBI hafi látið sérmerkja bourbon viskí-flöskur sem hann hefur verið að gefa fólki. Flaskan er merkt með nafni forstjórans sem og skjaldamerki FBI. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn FBI sögðu Fitzpatrick að gjafir sem þessar séu ekki viðeigandi, enda hafi FBI lengi haft harða stefnu gegn áfengisneyslu starfsmanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi
Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran