fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fókus

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Fókus
Fimmtudaginn 7. maí 2026 09:30

Ella Love

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ella Love, 51 árs, búsett í New York í Bandaríkjunum, lagði kennarastarfið á hilluna eftir 13 ára starf sökum þess að starfið var streituvaldandi og yfirþyrmandi að hennar sögn. Í dag vinnur hún að meðaltali aðeins þrjár klukkustundir á dag og þénar allt að 100 þúsund dollara á ári, eða rúmar 12 milljónir króna.

Hún kynntist atvinnukúri eftir að hafa lesið blaðagrein árið 2017 og fór  í kjölfarið á námskeið sem kostaði hana 40 þúsund krónur. Eftir að hafa byrjað í hlutastarfi gerði hún starfið að fullu starfi fyrir átta árum og ver hún dögunum í að knúsa fólk í allt að níu klukkustundir í senn.

Love rukkar 20 þúsund krónur á klukkustund fyrir kúrið og þénar allt að 12 milljónir árlega, ef ekki meira, fyrir að vinna að jafnaði aðeins þrjár klukkustundir á dag. Hún segir að viðskiptavinir tjái henni oft frá ýmsu sem þeim liggur á hjarta, oft einhverju sem þeir hafa aldrei sagt neinum frá, segir hún í viðtali við Daily Star.

„Meðalviðskiptavinur minn er miðaldra karlmaður í vel launaðri vinnu og margir þeirra eru giftir. Þeir vilja ekki svíkja eða yfirgefa maka sinn, en það er engin nánd í sambandinu. Þeir og makinn hafa vaxið í sundur, það eru samskiptavandamál og þeir finna fyrir algjörri aftengingu. Þeir koma til mín vegna þess að þeir vilja enn vera giftir, þeir þurfa bara snertingu og einhvern til að tala við.“

Fólk heldur að það sé bara að borga fyrir faðmlag, en það er ekki það sem gerist. Snertingin virkjar bældar tilfinningar. Viðskiptavinir mínir skyndilega að muna hluti, opna sig, segja mér hluti sem þeir hafa aldrei sagt upphátt áður. Það verður mjög sterk meðferðarupplifun.“

Love er kennari að mennt og starfaði áður í skóla í New York þar sem hún vann að minnsta kosti átta klukkustundir á dag og þénaði tæpar 11 milljónir árlega. „Ég kenndi í opinberum skólum þar sem meirihlutinn eru nemendur af lituðum uppruna og við áttum við mörg kerfisbundin vandamál að stríða í Bandaríkjunum. Streitan kom frá stórum bekkjum, því að hafa ekki tíma fyrir neitt, agavandamálum, takmörkuðum fjármunum fyrir námsefni.“

Kúrið átti þó ekki að verða að atvinnu, hvað þá fullri vinnu: „Ég var að leita að einhverju með allt annarri orku, einhverju róandi. Ég hélt ekki að þetta yrði starfsferill minn. Ég vildi bara eitthvað sem myndi hjálpa til við að stjórna taugakerfinu mínu samhliða kennslu.“

En eftir að hafa tekið netnámskeið og prófað atvinnukúr sem hlutastarf, áttaði hún sig fljótt á því að hún hafði fundið köllun sína. „Innan sex mánaða elskaði ég þetta svo mikið að ég tók mér leyfi og fór aldrei aftur í kennarastarfið. Þann vetur var ég að vinna við kúrið í fullu starfi og hef nú gert það í átta ár.“

Þrátt fyrir náið eðli vinnu sinnar fullyrðir Ella að það sé platónskt og með skýrum reglum. „Ég tek viðtöl við alla viðskiptavini mína og ekki allir eru samþykktir. Það eru siðareglur og mjög skýr mörk. Þegar ég byrjaði fyrst reyndu sumir að ýta þessum mörkum, en ég stöðvaði þá og minnti þá á reglurnar. Það var erfitt að vita hvaða viðskiptavini maður ætti ekki að taka, en maður kynnist því fljótt. Maður hefur tilfinningu fyrir því ef þeir eru í þessu af röngum ástæðum.“

Love segist finna fyrir öryggi með viðskiptavinum sínum en þeir geti orðið fyrir kynferðislegri örvun. „Ef það gerist þá minni ég hann á að  þetta sé bara lífeðlisfræðileg viðbrögð. Ég segi þeim að þetta sé eðlilegt en þú getir ekki brugðist við því. Þú andar, skiptir um stellingu og heldur áfram. Það er hluti af fagmennskunni.“

Hún segir að hún vinni að jafnaði  aðeins þrjár klukkustundir á dag, en tímarnir eru frá einni upp í níu klukkustundir. „Það er mjög mismunandi. Sumir koma í klukkustund, aðrir í 90 mínútur eða tvær klukkustundir. Ég hef farið í tíma sem stóðu yfir í níu klukkustundir. Sumir viðskiptavinir koma reglulega og aðrir spara til að koma öðru hvoru.“

Hún segir að tekjur hennar geti náð 100.000 dollurum á góðu ári, þó að meðaltalið sé nær 60.000 dollurum. Auk peninganna segir hún að vinnan sé djúpt tilfinningaþrungin og stundum flókin.

Love vinnur einnig með skjólstæðingum sem eiga í erfiðleikum með líkamleg samskipti, þar á meðal einstaklingum sem eru  á einhverfurófinu.

„Sumir eru í fyrsta skipti að upplifa örugga, samþykkisbundna snertingu. Þeir gætu átt í erfiðleikum með augnsamband eða tengsl, og þetta gefur þeim rými til að læra það. Þetta er öruggt umhverfi þar sem fólk getur æft sig.“

Love segir marga viðskiptavini hennar halda því leyndu að þeir mæti til hennar. Segir hún það synd að fólk sé haldið fordómum gagnvart starfi hennar.

Starfið hefur einnig flækt ástarlíf hennar.

„Það þarf mjög öruggan og traustan maka til að fara á stefnumót með mér. Sum sambönd mín hafa virkað, en öfund getur sprottið upp því vinnan er svo náin og tilfinningaþrungin. Sem betur fer vita þeir sem ég hef verið í samböndum með að þetta er vinna, og allt öðruvísi en þegar ég knúsa þá. Tengslin sem ég hef við viðskiptavini eru allt önnur en í ástarsambandi. Með viðskiptavinum mínum eru þau einhliða, ég er til staðar fyrir þá og þarfir þeirra. Í sambandi er það gagnkvæmt. Snertingin er í raun lítill hluti af starfinu. Hin raunverulega vinna er tilfinningaleg nánd, varnarleysi og traust. Það eru ekki allir sem þurfa á atvinnuknúsara að halda, en allir eiga skilið einhvern sem þeir geta fundið fyrir öryggi með.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Dauðsér eftir því að hafa ekki tilkynnt um brot Skeggja – „Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar“

Dauðsér eftir því að hafa ekki tilkynnt um brot Skeggja – „Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Barnastjarna úr vinsælli jólamynd endaði í kláminu – „Ég þarf pening fyrir húsaleigu“

Barnastjarna úr vinsælli jólamynd endaði í kláminu – „Ég þarf pening fyrir húsaleigu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið
Fókus
Fyrir 1 viku

Þurfti áfallaúrvinnslu eftir fund með Ölmu Möller – „Ég var gerð að engu“

Þurfti áfallaúrvinnslu eftir fund með Ölmu Möller – „Ég var gerð að engu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 1 viku

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig