Samkvæmt friðarsamningi frá 1998 þá lögðu vopnaðar fylkingar á Norður-Írlandi, þar á meðal IRA, niður vopn og hættu vopnaðri baráttu. En innan IRA voru ekki allir sáttir við friðarsamninginn og 2012 var New IRA stofnað. Í samtökunum eru aðallega miðaldra menn, sem tóku þátt í átökunum fyrir 1998, og ungir og óreyndir menn með mjög róttækar skoðanir. Þeir eru aðallega frá Londonderry. Sumir af eldri meðlimunum hafa drepið lögreglumenn og breska hermenn.
Samtökin hafa á síðustu árum staðið á bak við mörg morð og árásir á lögreglumenn og fangaverði meðal annarra. Einnig eru samtökin grunuð um að hafa staðið á bak við hefndarárásir þar sem fólk hefur verið skotið í fótleggi eða hné vegna gruns um að það hafi ekki verið hliðhollt samtökunum og jafnvel svikið þau. Samtökin hafa viðurkennt að hafa staðið á bak við morðið á blaðakonunni Lyra McKee sem var skotin til bana í Londonderry 2019. Einnig er talið að samtökin hafi staðið á bak við fjölda misheppnaðra bílsprengjutilræða sem norður-írska lögreglan komst á snoðir um og náði að koma í veg fyrir. Það má kannski skýra með að MI5 hafði árum saman uppljóstrara í innsta hring New IRA.
Uppljóstrarinn naut svo mikils trausts innan New IRA að hann sá um að finna og bóka örugg hús þar sem samtökin gátu haldið fundi og skipulagt hryðjuverk til að reyna að valda eins miklum óróleika og þau gátu. Hann fann húsin meðal annars í gegnum bókunarsíðuna booking.com. Þegar hann hafði bókað húsin fóru starfsmenn MI5 í þau og komu hljóð- og myndupptökubúnaði fyrir. Að fundum loknum fínkembdu starfsmenn MI5 húsin og lögðu hald á öll sönnunargögn, til dæmis sígarettustubba, diska og glös til að komast yfir lífsýni úr forystumönnum samtakanna. Að auki hlustuðu þeir á það sem fram fór á fundunum. Samkvæmt fréttum breskra og írska fjölmiðla þá voru árásir oft skipulagðar á þessum fundum. Einnig eru leiðtogarnir sagðir hafa kvartað og kveinað yfir að þeir fengu ekki aðgang að þeim vopnum sem IRA notaði í borgarastyrjöldinni, þar á meðal sprengiefninu Semtex og AK47 vélbyssum auk rússneskra vélbyssa. Forystumenn IRA höfðu sagt New IRA að samtökin „væru þess ekki verðug að fá vopnin“. Þetta hefur vakið upp spurningar um hversu mikið af vopnum hinar ýmsu fylkingar IRA eyðilögðu eins og lofað var í tengslum við friðarsamninginn.
Þegar lögreglan og MI5 létu til skara í lok ágúst voru 10 handteknir, þar af eru 7 ákærðir fyrir hryðjuverk. Meðal hinna handteknu eru helstu leiðtogar samtakanna. Það hefur vakið sérstakar áhyggjur að meðal hinna handteknu er læknir af palestínskum uppruna. Hann býr í Edinborg í Skotlandi. Segja saksóknarar að sumar hryðjuverkaárásirnar hafi átt að gerast í samvinnu við ein eða fleiri hryðjuverkasamtök frá Miðausturlöndum.
Höggið var þungt fyrir New IRA og eins og sagði í umfjöllun Belfast Telegraph þá „er búið að höggva höfuðið af slöngunni“.