fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Pressan

Trump og Biden mætast í sjónvarpskappræðum

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 6. september 2020 14:45

Trump og Biden. Mynd/samsett Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump hefur rætt um Joe Biden og Joe Biden hefur rætt um Donald Trump. En nú styttist í að forsetaframbjóðendurnir tveir mætist í kappræðum í sjónvarpi. Það munu þeir gera þrisvar sinnum, í fyrsta sinn í lok september.

New York Times segir að báðir frambjóðendurnir séu farnir í æfingabúðir til að undirbúa sig sem allra best fyrir kappræðurnar sem geta skipt miklu máli hvað varðar úrslit forsetakosninganna. Fólk mun taka eftir hverju orði þeirra, hverri hreyfingu, raddbeitingu og eiginlega bara öllu. Allt verður þetta síðan greint niður í kjölinn af sérfræðingum.

Donald Trump er 74 ára og Joe Biden 77 ára. Þeir eru elstu forsetaframbjóðendur sögunnar í Bandaríkjunum. Þeir hafa sakað hvorn annan um elliglöp og segja hinn vera ófæran um að sinna forsetaembættinu.

En þeir eiga eflaust erfitt kvöld í vændum þann 29. september þegar fyrstu kappræðurnar fara fram. Þær verða í Cleveland í Ohio og það verður Chris Wallace, frá FoxNews, sem stýrir þeim. Hann þykir einn besti fréttamaður Bandaríkjanna og er óháður. Stjórnmálamenn vita það og að hann gengur hart fram og spyr erfiðra spurninga. Ef viðmælendur hans svara ekki eða reyna að víkja sér undan spyr hann bara aftur þar til hann fær svar.

Næstu kappræður fara fram í Miami í Flórída 15. október og mun Steve Scully, frá C-SPAN, stýra þeim. Sjónvarpsstöðin sendir daglega beint frá Bandaríkjaþingi. Í þessum kappræðum verða gestir í sjónvarpssal og mega þeir spyrja spurninga.

Síðustu kappræðurnar fara fram 22. október í Nashville í Tennessee og mun Kristen Welken, hjá NBC, stýra þeim. Hún er eins og Wallace og Scully þekkt fyrir að ganga hart að viðmælendum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi mynd lagði líf drengjanna í rúst – Nú hafa þeir fengið uppreisn æru

Þessi mynd lagði líf drengjanna í rúst – Nú hafa þeir fengið uppreisn æru
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldi föður reyndist svo þungbært að hjarta litla drengsins fór að gefa sig

Ofbeldi föður reyndist svo þungbært að hjarta litla drengsins fór að gefa sig
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eltihrellirinn úr Baby Reindeer mætir í viðtal hjá Piers Morgan – Fiona Harvey vill leiðrétta eitt og annað

Eltihrellirinn úr Baby Reindeer mætir í viðtal hjá Piers Morgan – Fiona Harvey vill leiðrétta eitt og annað
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalir hafa fengið nóg – Sekta fólk fyrir að vera á sundskýlunni eða bikiní einu saman

Ítalir hafa fengið nóg – Sekta fólk fyrir að vera á sundskýlunni eða bikiní einu saman
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hélt að hann væri sloppinn – En 57 árum síðar gerðist það

Hélt að hann væri sloppinn – En 57 árum síðar gerðist það