fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Pressan

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?

Pressan
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmenni var viðstatt þegar fangavörðurinn Vicky White var jarðsungin. Hún hafði starfað í Lauderdale-fangelsinu í um 17 ár og var þekkt fyrir hjálpsemi og innilegheit. Það var þó þungt yfir gestum enda hafði engan órað fyrir því hvernig Vicky myndi mæta örlögum sínum. Um tveimur vikum áður hafði hún skyndilega tilkynnt yfirmönnum sínum að hún ætlaði að láta af störfum, og það strax. Hennar seinasta verk var, að eigin sögn, að fylgja öðrum fanga í geðmat. Ellefu dögum síðar var hún dáin. Hún svipti sig lífi eftir að hafa lent í bílslysi á flótta undan lögreglunni. Þetta átti sér stað árið 2022 og málið vakti mikla athygli. Eftir stendur spurningin hvort að Vicky hafi verið fórnarlamb útsmogins glæpamanns eða hvort hér hafi verið um rómantískan harmleik að ræða.

Óheppin í ástum en farsæl í starfi

Þrátt fyrir að vera vel liðin í starfi og þekkt fyrir samkennd og góðmennsku hafði ástin ekki farið mjúkum höndum um fangavörðinn Vicky White. Hún var gift Tommy White í fjögur ár en þau skildu sökum fíknivanda hans. Síðan trúlofaðist hún öðrum manni en hann lét lífið áður en þau náðu að ganga í hjónaband. Hún eyddi því allri sinni orku og hlýju í starf sitt þar sem hún vann um 50-60 klukkustundir á viku og gætti þess ávallt að koma fram við fanga af virðingu og gæsku. Ef einhvern vantaði eitthvað í Lauderdale-fangelsinu var hægt að leita til Vicky, en hún var ávallt boðin og reiðubúin til að rétta fram hjálparhönd.

„Hún bar umhyggju fyrir öllum, en hvar bar umhyggju fyrir Vicky?“ sagði einn samstarfsfélagi í heimildarmynd Netflix um málið. Það kom sem þruma úr heiðskíru lofti þegar Vicky, þá 57 ára gömul, tilkynnti um starfslok sín með dags fyrirvara. Mánuði áður seldi hún fasteign sína á tæplega hálfvirði og eins hafði hún sankað að sér skotvopnum. Hvað var í gangi hjá fangaverðinum?

Ofbeldisfullur þjóðernissinni

Víkur þá sögunni að hinum 39 ára gamla Casey White, ofbeldisfullum þjóðernissinna sem var dæmdur í 75 ára fangelsi eftir tæpan áratug af glæpum sem meðal annars fólust í ráni, bílaþjófnaði, húsbroti og morðtilraun. White var mikill maður að vexti, rúmlega tveir metrar á hæð, og ekki sáttur við hlutskipti sitt í lífinu. Hann átti líka yfir höfði sér enn þyngri dóm eftir að hann var ákærður fyrir morðið á 59 ára gamalli konu. Árið 2020 var hann framseldur til Lauderdale-fangelsisins vegna ákærunnar. Fljótlega eftir að þangað var komið reyndi hann fyrst að strjúka en tilraun sú bar ekki árangur.

Örlögin leiddu þau saman

Árið 2021 var fangelsið yfirfullt. Brugðið var á það ráð að færa fanga til og þannig endaði Casey í A1-klefanum og fékk þá nýjan fangavörð – Vicky White. Casey fór að gera hosur sínar grænar fyrir fangaverðinum. Hann keypti kort í verslun fangelsisins og skrifaði ástarbréf svo lítið bæri á. Vicky sagði engum frá þessu. Hún gaf til kynna við einn samstarfsmann, í desember árið 2021, að hún væri með tvo í takinu. Enginn vissi að annar þessara manna var Casey. Þau áttu í samskiptum þegar Vicky var í vinnunni og þess á milli skiptust þau á alls 949 símtölum. Talið er að Vicky hafi nýtt stöðu sína svo þau gætu stundað kynlíf.

Það var svo í apríl 2022 sem Vicky tilkynnti skyndilega um starfslok sín. Þrátt fyrir að fyrirvarinn væri naumur ákváðu samstarfsfélagarnir að halda kveðjuhóf en Vicky var það óvenju þögul. Áður en hún hélt heim bað hún samstarfsfélaga að sækja Casey. Hennar seinasta verk yrði að fylgja honum í geðmat í dómshúsinu. Vicky og Casey héldu af stað rétt fyrir klukkan tíu um morguninn. Tæpum sex klukkustundum síðar höfðu þau ekki skilað sér til baka. Þá fóru hinir fangaverðirnir að ókyrrast. Þeir ákváðu að skoða upptöku úr eftirlitsmyndavél og uppgötvuðu sér til skelfingar að Vicky fór ein með Casey. Þetta braut gegn verklagsreglum í fangelsinu hvað ofbeldisfulla glæpamenn varðar. Vicky þekkti verklagið eins og handabakið á sér. Hér var því um viljaverk að ræða.

Vinnubifreið hennar fannst yfirgefin við verslunarmiðstöð í nágrenninu. Vicky og Casey voru lögð á flótta með peningana sem hún hafði fengið við sölu fasteignar sinnar. Næstu daga reyndi parið að fara huldu höfði. Þau skiptu reglulega um bíla og reyndu að dvelja ekki lengi á sama gististaðnum. Vicky litaði á sér hárið og notaði hárkollur.

Eltingaleikur verður harmleikur

Það er þó erfiðara að fela sig þegar annar aðilinn er tröllvaxinn og það tók lögreglu aðeins 11 daga að hafa uppi á þeim. Þau reyndu aftur að leggja á flótta og hófst þá bílaeltingaleikur sem lauk með því að lögreglumaður ók í hlið bifreiðar parsins sem við það valt og hafnaði ofan í skurði. Casey kom út úr bílabrakinu með uppréttar hendur. Þegar lögregla kom að bifreiðinni hafði Vicky skotið sig í höfuðið. Hún var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Casey greindi síðar frá því að þau hefðu gert með sér samkomulag um að ef lögreglan hefði uppi á þeim myndi Vicky svipta sig lífi og Casey myndi deyja í skotbardaga við lögregluna.

Margir velta nú fyrir sér hvort ástin hafi verið gagnkvæm eða ekki. Það leikur enginn vafi á því að Vicky elskaði Casey, en var það gagnkvæmt? Margir telja að fanginn hafi notfært sér hvað Vicky var góðviljuð og einmana. Hann hafi aldrei elskað hana. Casey segir sjálfur að ástin hafi verið raunveruleg. Þessir 11 dagar sem þau áttu saman hafi verið himnaríki á jörðu.

„Hefði hann elskað hana hefði hann aldrei sett hana í þessa stöðu. Þau hefðu fundið aðra leið til að láta þetta virka,“ sagði samstarfsfélagi í áðurnefndri heimildarmynd. Klefafélagi Casey telur þó að ástin hafi verið bæði raunveruleg og heit.

„Casey vildi eiga eðlilegt líf með Vicky. Það er ekki hægt þegar maður situr í fangelsi. Hún vissi hverjar áhætturnar væru. Henni var sama. Hún vissi hvað myndi gerast og henni var sama. Hún fékk það sem hún vildi sem var tími með honum.“

Að sögn Casey stefndi parið á að lifa lífinu saman í litlu hjólhýsi. Hann hafi litið á hana sem eiginkonu sína.

Casey var ákærður fyrir morðið á Vicky, jafnvel þó að hann hafi ekki valdið andláti hennar með beinum hætti. Að mati ákæruvaldsins hafði Casey orðið til þess að Vicky svipti sig lífi. Hann hefur nú verið dæmdur í lífstíðarfangelsi og er eins meinað að setja sig í samband við fjölskyldu fangavarðarins.

„Mér líður eins og hataðasta manni í heiminum. Ég elskaði Vicky og ég myndi ekki draga nafn hennar í svaðið fyrir neinn í þessum réttarsal,“ sagði Casey við dómsuppkvaðningu í júní árið 2023. „Vicky nældi í mig því hún sagði: rétt skal vera rétt og rangt skal vera rangt. Hún var fyrsta manneskjan sem sýndi mér ástúð. Fyrsta manneskjan í sex ár sem faðmaði mig.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skyndikynnin enduðu skelfilega – Svalamaðurinn var í hefndarhug

Skyndikynnin enduðu skelfilega – Svalamaðurinn var í hefndarhug
Pressan
Fyrir 5 dögum

Rekin áður en hún náði að mæta í vinnuna – Skrifaði heimskulegustu Facebookfærslu sögunnar

Rekin áður en hún náði að mæta í vinnuna – Skrifaði heimskulegustu Facebookfærslu sögunnar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Birta stefnuskrá byssumannsins þar sem hann lýsir sér sem „vinalegum leigumorðingja“  – „Halló, öll“

Birta stefnuskrá byssumannsins þar sem hann lýsir sér sem „vinalegum leigumorðingja“  – „Halló, öll“