fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 4. maí 2026 17:00

Byggingarvinna. Mynd: Getty. Tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi byggingaverktakafyrirtækisins PJ Verk, maður að nafni Algirdas Skucas, hefur verið úrskurðaður í tveggja ára atvinnurekstrarbann, í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Fyrirtækið var stofnað árið 2021 var tekið til gjaldþrotaskipta þremur árum síðar. Algirdas var eini stjórnarmaður félagsins, framkvæmdastjóri þess og prókúruhafi.

Lýstar kröfur í búið voru rétt tæplega 15 milljónir króna og fyrir utan bíl sem Landsbankinn  hafði lánað fyrir og skiptastjóri seldi úr búinu fékkst ekkert upp í lýstar kröfur. Meðal stórra kröfuhafa var Skatturinn.

Skiptastjóri krafðist atvinnurekstrarbanns yfir Algirdas á grundvelli þess að hann hefði enga tilraun gert til að takmarka tjón kröfuhafa með greiðslum upp í kröfur þeirra og vegna þess að greiðslur höfðu runnið af reikningi félagsins til einkanota Algirdas, samtals um sex milljónir króna. Hann hafi í raun tæmt reikninga félagsins í aðdraganda gjaldþrotsins.

Lögum samkvæmt eru skilyrði atvinnurekstrarbanns þau að viðkomandi einstaklingur teljist ekki hæfur til að stjórna félagi sem rekið er með takmarkaðri ábyrgð eigenda vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félagsins.

Var það mat dómara að skilyrði atvinnurekstrarbanns væru uppfyllt í máli Algirdas og var úrskurðað að hann sæti atvinnurekstrarbanni í tvö ár.

Úrskurðinn má lesa hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð