fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 17:30

Potgieter sótti krókódílinn. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Suður Afríku notaði þyrlu til þess að sækja ríkan mann sem krókódíll hafði étið. Krókódíllinn var hífður upp með manninn í maganum.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.

Maðurinn lést í síðustu viku þegar bíll hans festist á brú yfir fljótið Komati í austurhluta Suður Afríku. Flætt hafði yfir brúnna og bíllinn stöðvaðist á stórhættulegum stað.

Þegar lögreglumenn fundu bílinn var hann tómur og talið var að straumurinn hefði hrifsað manninn með sér. Leitarflokkar voru sendir af stað með þyrlur og dróna til að reyna að finna manninn.

Með fullan maga

Loks komu leitarmenn auga á nokkra krókódíla sem flatmöguðu á hólma í fljótinu. Snemma grunuðu þeir einn krókódílana um að hafa étið manninn.

„Auk þess að vera með stútfullan maga þá hreyfði hann sig ekki eða reyndi að komast ofan í fljótið þegar drónarnir og þyrlan komu,“ segir Johant Potgieter, varðstjóri hjá lögreglunni.

Hættuleg aðgerð

Var tekin ákvörðun um að fella dýrið og ferja það í burtu með þyrlu. Aðgerðin var þó talin mjög hættuleg.

Það var Potgieter sjálfur sem seig í bandi úr þyrlunni og batt utan um hræ krókódílsins. Var hann svo hífður upp og flogið með hann frá ánni.

Fundu sex mismunandi skó

Krókódíllinn, sem er 4,5 metrar að lengd og hálft tonn að þyngd, var fluttur í hinn nærliggjandi Kruger þjóðgarð. Þar var hann ristur upp og reyndust grunsemdirnar réttar. Inni í iðrum hans fundust líkamsleifar ríka mannsins sem festist á brúnni.

En það var ekki það eina sem fannst í belgnum. Þar fundust einnig sex aðrar týpur af skóm. Hvort þetta þýði að krókódíllinn hafi áður étið fólk skal þó ósagt látið.

„Krókódíll étur og gleypir hvað sem er,“ segir Potgieter.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis
Fréttir
Í gær

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum
Fréttir
Í gær

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“
Fréttir
Í gær

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 
Fréttir
Í gær

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar