fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Egill spáir því að þessir flokkar myndi meirihluta eftir kosningar

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 16:30

Egill spáir í spilin um meirihlutamyndun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segir að kannanir sýni vinstri sveiflu í Reykjavík. Engu að síður telur hann líklegast að hægri meirihluti verði myndaður.

„Samkvæmt nýjustu könnun er vinstri sveifla í borginni, Vinstrið og Sósíalistar með samanlagt 18 prósent,“ segir Egill í færslu á samfélagsmiðlum og vitnar í nýja könnun Gallup. Þar mælist Vinstrið með 13 prósent og Sósíalistar með 5 prósent.

Engu að síður spáir hann meirihluta undir forystu Sjálfstæðisflokksins.

„Sjálfstæðisflokkurinn að ná vopnum sínum og er langlíklegastur til að leiða borgarstjórn og fá borgarstjórann – Hildi Björnsdóttur. Miðflokkurinn er ekki gera gott mót, hann sígur í skoðanakönnunum – og það fylgi skilar sér til Sjálfstæðisflokksins,“ segir Egill. „Kannski sjá einhverjir sem skiptu yfir í Miðflokkinn úr Sjálfstæðisflokknum þegar hann fór með himinskauptum í skoðanakönnunum eftir því?“

Segir hann að miðað við kannanir séu Framsókn, Flokkur fólksins og Píratar ekki að ná vopnum sínum og varla að ná manni inn í borgarstjórn. Samkvæmt könnuninni mælist Sjálfstæðisflokkur með 9 fullrúa, Samfylking 6, Vinstrið 3, Miðflokkur 2, Viðreisn 2 og Sósíalistar 1.

„Líklegasti meirihlutinn er ennþá Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkurinn og Viðreisn – þótt síðartöldu flokkarnir gætu átt í erfiðleikum með að vinna saman,“ segir Egill. En eins og hefur einnig komið fram í könnunum er hvergi minna traust en á milli Viðreisnar og Miðflokks.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“