fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Tívolíið í Smáralind lokar – Smárabíó verður með barnagæslu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. desember 2018 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smáratívolí í Smáralind lokar í febrúar á næsta ári eftir átta ár í rekstir og gerðar verða breytingar á húsnæðinu í kjölfarið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rekstraraðilum.

Smárabíó mun taka yfir hluta af húsnæðinu og bjóða upp á barnagæslu ásamt þjónustu fyrir hópa.

„Sleggjan og klessubílarnir fara á næstu vikum. Nýjar myndir eru komnar í 7D bíóið og börnum hærri en 110 cm gefst kostur á að róla í sleggjunni þar til hún fer,“ segir í tilkynningunni.

Eigendur inneignarkorta geta notað kortin frá 1. mars í þeim leiktækjum sem Smárabíó mun reka á efri hæð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt