

Brasilísk kona á þrítugsaldri lést eftir af hafa fengið sér rasslyftingu. Ígræðslan gekk svo illa að hún fékk hjartaáfall.
Breska blaðið the Daily Star greinir frá þessu.
Konan hét Barbara Laura Souza Flix, 27 ára gömul og starfaði við sölumennsku. Barbara lést þriðjudaginn 26. maí í rasslyftiaðgerð á einkarekinni læknastofu, Instituto Mineiro de Obesidade, í borginni Belo Horizonte. Það er þegar fituvefur úr maga var færður yfir á rassinn.
Heilbrigðisstarfsfólkið tók eftir að öndunin byrjaði að minnka í ígræðslunni sjálfri. Að lokum stoppaði hjartað alveg. Endurlífgunartilraunir voru reyndar í klukkutíma en báru ekki árangur. Laust eftir hádegi þennan dag var Barbara úrskurðuð látin.
Lögregla var kölluð til á stofuna og hefur hún nú opnað rannsókn á málinu. Lík Barböru var flutt á réttarmeinastofu og krufið.
Talið er að ástæðan fyrir þessu hafi verið svokallað lugnasegarek, eða blóðtappi í lungum. Hugsanlega tengt fitu. Hins vegar var ekki vitað um nein heilsufarsvandamál hjá henni.
Barbara var einstæð og barnlaus. Faðir hennar er látinn og móðirin býr á Spáni. Barbara ólst upp hjá ömmu sinni ásamt bróður sínum. Fjölskylda Barböru og vinir lýsa henni sem lífsglaðri og opinni ungri konu. Hún hafði hug á því að flytja erlendis.
„Hún var einstaklega lífsglöð, opin og alltaf glöð,“ segir Ingrid Ester Martins Picoreli, vinkona Barböru. „Hún var mjög ákveðin og elti það sem hún vildi.“
Fjölskyldan hefur velt vöngum yfir aðgerðinni, sem var framkvæmd af lækninum Pablo Meneghetti. Engin yfirlýsing hefur komið frá honum eða læknastofunni.