fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Fjögurra manna fjölskylda fór til Íslands – „Ég náði í yfirlitið af greiðslukortinu mínu og þetta eru niðurstöðurnar“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 1. júní 2026 19:00

Það er ekki ódýrt að vera ferðamaður á Íslandi......eða heimamaður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjögurra manna fjölskylda borgaði svimandi  upphæð fyrir 11 nátta dvöl á Íslandi. Fjölskyldufaðirinn segir þetta vissulega hafa rifið í budduna en ferðin hafi verið einstök.

„Það er mikið talað um ferðakostnað á Íslandi – En hvað kostar það fjögurra manna fjölskyldu (hjón með tvö börn á þrítugsaldri) að fara í 12 daga/11 nátta ferð? Ég náði í yfirlitið af greiðslukortinu mínu og þetta eru niðurstöðurnar,“ segir erlendur ferðamaður í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

 

Sundurliðaður er kostnaðurinn eftirfarandi:

Flug – 4.406,12 dollarar (545.345 krónur)

Bílaleiga – 2.095,48 dollarar (259.358 krónur)

Skemmtanir – 3.064,84 dollarar (379.335 krónur)

Matur og drykkur – 2.940,27 dollarar (363.917 krónur)

Bensín – 306,48 dollarar (37.933 krónur)

Vörur úr matvörubúð – 191,56 dollarar (23.709 krónur)

Hótelgisting – 5.384,57 dollarar (666.448 krónur)

Bílastæði – 187,03 dollarar (23.149 krónur)

Samanlagt: 18.576,35 dollarar (2.299.195 krónur)

 

Nefnir ferðamaðurinn að þetta sé ekki einu sinni alveg allur kostnaðurinn. Inni í þessum tölum eru ekki hlutir sem voru keyptir í verslunum, til dæmis lopapeysur. Heldur ekki ferðatryggingar.

„Ég fékk líka eina bílastæðasekt……ég ætla ekki að byrja að tala um það,“ segir ferðamaðurinn augljóslega pirraður.

Fengu sem mest út úr ferðinni

Mikil umræða hefur verið um kostnað á Íslandi. Auk verðlagsins sé krónan sterk og þetta sé byrjað að hafa áhrif á ferðamenn. Ferðamenn fari héðan með óbragð í munninum og komi ekki aftur. Vari jafn vel aðra við að koma hingað. Sem sagt orðspor landsins fer versnandi.

Sjá einnig:

Hrun í komu ferðamanna – Marinó segir tvær leiðir í boði og önnur sé augljóslega betri

„Já þetta er dýrt,“ segir ferðamaðurinn. „Það eru alls kyns leiðir til að ferðast. Við hefðum geta farið þessa ferð á ódýrari máta en við hefðum líka geta eytt miklu meira ef við hefðum viljað það. Ég myndi segja að við höfum eytt því sem við þurftum til þess að gera þessa ferð þægilega og fá sem mest út úr henni.“

Skemmtanir dýrar en mikilvægar

Gistingin var stærsti útgjaldaliðurinn. Fjölskyldan pantaði ávallt 2 herbergi á hótelum. Í eitt skipti dvaldi fjölskyldan á gistihúsi og í tvö skipti í Airbnb íbúðum.

Bílaleigubíllinn var af gerðinni Kia Sportage, fulltryggður og með hotspot. Segist ferðamaðurinn ekki hafa séð eftir tryggingunni og að þessi stærð af bíl hafi hentað fjölskyldunni vel.

Morgunmatur var oft innifalinn í hótelverði og hádegisverður keyptur í matvöruverslun. Yfirleitt var aðeins farið út að borða á kvöldin og lítið drukkið af áfengi.

Skemmtanirnar voru stór útgjaldaliður. En inni í þeim kostnaði má nefna ferð í Sky Lagoon, Reykjavík Food Walk, hvalaskoðun, hestaferð og siglingu á lóni. „Þessi kostnaður safnast hratt saman en þetta gerði ferðina svo miklu eftirminnilegri,“ segir ferðamaðurinn. Bílastæðakostnaðurinn hafi einnig safnast hratt saman.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir Írisi hafa orðið fyrir svívirðingum vegna rangra ásakana – „Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér“

Segir Írisi hafa orðið fyrir svívirðingum vegna rangra ásakana – „Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Segir umræðuna um ESB og auðlindir Íslands sérstaka

Segir umræðuna um ESB og auðlindir Íslands sérstaka
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ofur-El Niño gæti skollið á í sumar – Veðurstofan fjallar um möguleg áhrif á Ísland

Ofur-El Niño gæti skollið á í sumar – Veðurstofan fjallar um möguleg áhrif á Ísland
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Maðurinn á bak við fyrirsögnina stígur fram – „Í fjögur ár hef ég þagað“

Maðurinn á bak við fyrirsögnina stígur fram – „Í fjögur ár hef ég þagað“