
Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar, meðal annars La Vanguardia og El País.
Samkvæmt upplýsingum fjölmiðlanna var Jonathan Andic handtekinn í morgun eftir margra mánaða rannsókn lögreglu á atvikinu.
Sjá einnig: Eitt vitni varð að dauða milljarðamæringsins – Nú á að hefja rannsókn aftur
Isak Andic, sem var 71 árs gamall þegar hann lést, hrapaði til bana við Montserrat-fjall nærri Barcelona þann 14. desember 2024. Hann var þar ásamt syni sínum þegar slysið varð.
Jonathan Andic hefur ítrekað neitað sök og haldið því fram að um slys hafi verið að ræða. Hann var áður yfirheyrður sem vitni en hefur nú formlega stöðu sakbornings í málinu.
Lögreglan í Katalóníu hefur lítið viljað tjá sig um rannsóknina þar sem dómari hefur sett svonefndan trúnaðarúrskurð á málið. Í frétt Mail Online, sem fjallar um málið, kemur fram að slík úrræði séu algeng á Spáni þegar um viðkvæmar rannsóknir er að ræða.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum vöktu mótsagnir í framburði Jonathans Andic grunsemdir lögreglu og leiddu til þess að málið þróaðist úr rannsókn á banaslysi yfir í rannsókn á mögulegu manndrápi.
Heimildir tengdar rannsókninni segja einnig að samband feðganna hafi verið stirt og það hafi haft áhrif á mat lögreglu á málinu.
El País greindi frá því í fyrra að rannsakendur hefðu fundið vísbendingar sem samræmdust ekki frásögn sonarins. Meðal annars hafi staðsetning bifreiðar hans ekki stemmt við fyrri framburð hans.
Í frétt El País kemur fram að lögregla hafi ekki fundið afgerandi sönnunargögn sem varpi skýru ljósi á nákvæmlega hvað gerðist á Montserrat-fjalli þennan morgun. Hins vegar hafi samanlagðar vísbendingar orðið til þess að útilokað þótti að um slys væri að ræða.
Isak Andic stofnaði Mango árið 1984 ásamt bróður sínum Nahman Andic. Fyrirtækið óx hratt og varð eitt stærsta tískufyrirtæki Evrópu með þúsundir verslana í yfir hundrað löndum.
Skömmu fyrir andlát hans mat Forbes auðæfi Andic á um 4,5 milljarða Bandaríkjadala, rúma 550 milljarða króna, sem gerði hann að ríkasta manni Katalóníu.