fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
Fréttir

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. maí 2026 07:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segist hafa átt ágætis spjall við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, eftir kosningarnar um helgina.

Ari segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hann telji liggja í augum uppi að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun tveggja flokka meirihluta í samræmi við niðurstöðu kosninganna um helgina.

Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur og fékk 32,9% atkvæða en Miðflokkur fékk 11,4% atkvæða. Saman gætu þessir tveir flokkar myndað meirihluta með samtals 12 borgarfulltrúa.

Í samtali við Morgunblaðið segir Ari að Miðflokkurinn muni standa við sín kosningaloforð.

„Við verðum að vinna á grundvelli þeirra áherslna sem kjósendur kusu okkur út á. Þess vegna útilokaði ég samstarf við Samfylkinguna, þar er of langt á milli en að öðru leyti hef ég ekkert útilokað.“

Í blaðinu er einnig rætt við Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, sem segist vel geta hugsað sér samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, segir að sama skapi að hann vilji frekar vera í meirihluta en minnihluta og hann geti hugsað sér að vinna aftur með Björgu sem var aðstoðarmaður hans þegar hann var borgarstjóri. Bendir Einar á að Framsókn hafi ekki útilokað neinn flokk nema Samfylkingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“