
Enginn hefur farið fleiri ferðir og raunar var Kami þarna að slá eigið heimsmet.
Þrátt fyrir að vera orðinn 56 ára er hann enn í fullu fjöri og virðist hann hvergi nærri hættur.
Á sama tíma komst Lhakpa Sherpa á toppinn í ellefta sinn og hefur engin kona komist þangað oftar.
Kami fæddist í sama þorpi og Tenzing Norgay, en eins og margir vita var Tenzing fyrstur til að klífa Everest ásamt Edmund Hillary árið 1953.
Hann komst fyrst á toppinn árið 1994 og hefur komist þangað á hverju ári síðan, að árunum 2014, 2015 og 2020 undanskildum. Sum tímabilin hefur hann farið upp tvisvar.
Meðal fjallgöngumanna sem ekki eru sherpar á Bretinn Kenton Cool metið en hann hefur klifið Everest 19 sinnum. Þar á eftir koma Bandaríkjamennirnir Dave Hahn og Garrett Madison með 15 tindferðir hvor.
Cool og Madison eru nú staddir á Everest í þeirri von að bæta sextándu ferðinni við.
Alls hafa rúmlega átta þúsund göngugarpar sigrast á Everest-fjalli frá árinu 1953. Alls voru gefin út 492 gönguleyfi á fjallið á yfirstandandi vertíð sem hófst í mars og endar síðar í þessum mánuði.