fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin

Pressan
Mánudaginn 18. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk kona hefur verið handtekin og ákærð vegna dauða tveggja ungra dætra sinna sem fundust látnar í sundlaug við heimili fjölskyldunnar í Texas í febrúar síðastliðnum.

Málið hefur vakið mikla athygli vestanhafs eftir að krufning leiddi í ljós að stúlkurnar voru einnig með kókaín í blóði sínu þegar þær létust.

Konan, Laura Nicholson, 23 ára gömul, var handtekin á meðferðarstofnun í borginni Fort Myers í Flórída á dögunum eftir samhæfða aðgerð lögreglunnar í Texas og bandarísku alríkislögreglunnar, FBI.

Hún hefur verið ákærð fyrir tvö brot, en yfirvöld telja að stórfellt gáleysi og fíkniefnaneysla hafi átt þátt í dauða barnanna.

Amman kom að þeim í lauginni

Dæturnar, sem voru tveggja og þriggja ára, fundust meðvitundarlausar í sundlaug í bakgarði heimilis fjölskyldunnar í Katy, úthverfi í Houston, þann 11. febrúar síðastliðinn. Það var amma stúlknanna sem fann þær þegar hún kom heim eftir stutta ferð í búð.

Samkvæmt lögregluskýrslum hafði amman yfirgefið heimilið um stundarsakir og skilið Nicholson eftir heima með börnunum.

Þegar hún sneri aftur sá hún að bakdyr hússins stóðu opnar. Hún hafi síðan fundið stúlkurnar í sundlauginni og hringt í neyðarlínuna í örvæntingu sinni.

Viðbragðsaðilar komu fljótt á vettvang og voru stúlkurnar fluttar með þyrlu á barnaspítala í Houston. Þar voru þær úrskurðaðar látnar skömmu síðar.

Drukknun og bráð kókaíneitrun

Rannsókn lögreglu leiddi síðar í ljós að Nicholson hafði sofnað á sófa inni í húsinu á meðan börnin fóru út. Í gögnum málsins kemur fram að bakdyralæsing við húsið hafi verið biluð um nokkurt skeið og að fjölskyldumeðlimir hafi vitað af því.

Þá hafi móðirin sjálf viðurkennt við yfirvöld að börnin ættu það til að reyna að komast út úr húsinu og hlaupa að sundlauginni.

Málið tók þó enn alvarlegri stefnu þegar niðurstöður krufningar bárust. Þar kom fram að dánarorsök barnanna væri bæði drukknun og bráð kókaíneitrun. Rannsóknarmenn fundu bæði kókaín og umbrotsefni efnisins í blóði barnanna, sem bendir til þess að þau hafi innbyrt fíkniefnið áður en slysið varð.

Yfirvöld hafa ekki upplýst með hvaða hætti börnin komust í snertingu við kókaínið.

Samkvæmt skjölum sem lögð hafa verið fram fyrir dómi hafði barnavernd á svæðinu áður rannsakað ásakanir um fíkniefnaneyslu á heimilinu. Amma barnanna sagði rannsakendum að dóttir hennar hefði glímt við kókaínfíkn um nokkurt skeið og að fjölskyldan hefði haft áhyggjur af ástandi hennar.

Faðir Nicholson sagði lögreglu einnig að dóttir hans hefði oft sofnað eða misst meðvitund vegna neyslu og að slíkt hefði áður skapað hættulegar aðstæður á heimilinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Í gær

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 2 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðamæringur hóaði börnunum sínum saman til grimmdarlegrar æfingar

Milljarðamæringur hóaði börnunum sínum saman til grimmdarlegrar æfingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín