fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
Fréttir

Felldu tígrisdýr nálægt borginni Leipzig – Réðist á og stórslasaði aldraðan mann

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. maí 2026 21:30

Carmen Zander er kölluð tígriskonan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í borginni Leipzig í Þýskalandi skaut tígrisdýr sem hafði sloppið frá eiganda sínum. Tígrisdýrið hafði ráðist á og sært alvarlega mann á áttræðisaldri.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Lögreglunni í Leipzig, í austurhluta Þýskalands, barst tilkynning í gær, sunnudaginn 17. maí, um að tígrisdýr hefði sloppið frá eiganda sínum í bænum Schkeuditz, norðvestan við borgina.

Dýrið var í eigu konu sem heitir Carmen Zander, og kallar sig „Tígrisdrottninguna“, en hún starfar sem fjöllistamaður í sirkus. Dýrið sem slapp, var eitt af átta dýrum í eigu Zander.

Þegar lögreglan kom á staðinn, um klukkan 13:00, hafði dýrið ráðist á og stórslasað 72 ára gamlan mann. Engin áhætta var tekin og dýrið fellt samstundis með byssu.

Zander var á staðnum og náðust ljósmyndir af henni þar sem hún sat í bíl og grét, harmi slegin yfir atvikinu.

Lögreglan hefur hafið rannsókn á því hvernig dýrið komst úr prísund sinni. En ekkert hinna stóru kattardýranna slapp.

Thomas Druskat, bæjarstjóri, segir að atvikið sé óásættanlegt og að flytja ætti dýrin úr bænum. Þá hafa nágrannar sagt að aðbúnaður dýranna hafi lengi verið lélegur. Zander hefur ekki fengið að koma fram í fjögur ár, meðal annars vegna þess að búrin þykja allt of lítil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

„Þá drep ég þig og þennan hund“

„Þá drep ég þig og þennan hund“
Fréttir
Í gær

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“