fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Fréttir

Slanga í flugvél – „Ég hafði eitt tækifæri til þess að grípa hana“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 26. júlí 2025 19:30

Minnstu munaði að slangan færi djúpt inn í flugvélina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fresta þurfti flugi í tvo klukkutíma vegna þess að slanga var um borð. Upphaflega var ekki vitað hvort slangan væri eitruð eða ekki.

Fréttastofa Sky greinir frá þessu.

Þann 2. júlí þurfti að fresta flugi í tvo tíma í Ástralíu vegna þess að slanga sást um borð. Vélin var á leið frá Melbourne til Brisbane, rúmlega tveggja tíma flug. Farþegar urðu varir við hinn slímuga og iðandi vágest í vélinni þegar þeir komu inn í vélina og mikið uppnám skapaðist.

Ástralar eru reyndar ekki óvanir slöngum og snákum af ýmsum toga og því tók það ekki langan tíma að fá slöngufangara á staðinn. Fangarinn, Mark Pelley að nafni, taldi fyrst að um eitraðan snák gæti verið að ræða en hann hafði þá farið niður í farangursrýmið.

Seinna kom þó í ljós að um sárasaklausan trjásnák var að ræða, sextíu sentimetra langan.

„Það var ekki fyrr en eftir að ég náði snáknum að ég áttaði mig á því að hann var ekki eitraður,“ sagði Pelley. „Þangað til leit hann út fyrir að vera mjög hættulegur.“

Sagði hann mikla lukku að það hafi tekist að ná slöngunni. Hún hafi verið á leiðinni undir panel og hún hefði getað týnst einhvers staðar djúpt inni í flugvélinni.

„Ég hafði eitt tækifæri til þess að grípa hana því ef hún hefði sloppið frá mér hefði hún komist undir panelinn og þá hefði verið gríðarlega erfitt að ná henni,“ sagði Pelley. „Snákar eru mjög snöggir, mjóir og liðugir.“

Hefði það gerst hefði þurft að rýma flugvélina og aflýsa fluginu. Það hefði ekki verið öruggt að fljúga með snák inni í vélinni, sérstaklega ekki þegar það var ekki ljóst hvort hann væri eitraður eða ekki. En sem betur fer var slangan gripin og flugið tafðist aðeins um tvo klukkutíma.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Okur í íslensku bakaríi – „Bon apetit bankareikningurinn minn“

Okur í íslensku bakaríi – „Bon apetit bankareikningurinn minn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dó í farþegaflugi skammt frá Íslandi – Nú veit enginn hvar líkið er niðurkomið

Dó í farþegaflugi skammt frá Íslandi – Nú veit enginn hvar líkið er niðurkomið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna

Þessi sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Falsaðar auglýsingar fyrir þyngdarstjórnunarlyf hýstar á Íslandi – Nota andlit þekkts sjónvarpsfólks

Falsaðar auglýsingar fyrir þyngdarstjórnunarlyf hýstar á Íslandi – Nota andlit þekkts sjónvarpsfólks