fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fréttir

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. júní 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjördís María Karlsdóttir kvikmyndagerðarmaður segist föst í fátæktargildrunni og enga leið úr henni. Hún sé ekki sú eina því rúm 60 þúsund heimili séu í sama pakka og hún.

„Ég féll í þessa gildru og er ég að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag. Ofan á þetta leggjast svo „hin almennu útgjöld“ og þá er hver og ein einustu mánaðamót þá er kvíðahnútur í maganum, munum við eiga nóg fyrir bleyjum og mat? Munum við eiga nóg fyrir bensíni? Eins og staðan er núna þá er peningurinn búinn fyrir 10 hvers mánaðar.“

Í grein sinni segir Hjördís fátækt vaxandi vandamál á Íslandi og bilið lengist á milli þeirra ríku og þeirra sem fátækir eru.

„Fátækt er til í alls konar myndum. Það eru þeir sem eru láglaunaðir og borga himinháa leigu. Það eru líka einstæðir foreldrar, því Ísland er ekki barnvænt land. Það eru innflytjendur, því Ísland er með fjölþættan aðlögunarvanda. Það eru þau sem eru í neyslu. Það eru þau sem glíma við geðræn veikindi. Og svo er það hópurinn sem er einn af þeim stærstu, fólkið í miklu skuldafangelsi,“

segir Hjördís sem segist hluti af þessum hópi. 

„Allt mitt líf hef ég lifað við semí fátækt og lífið lagaðist ekki þegar ég fór að búa sjálf. Lífið mitt varð erfiðara. Ég ákvað að taka skyndilán til að ná endum saman og svo seinna meir til að láta mér líða vel, með kaup á nýjum hlutum.“

Sjá einnig: Hjördís María skrifar:Fasteignafélög og leigumarkaður

Tók smálán til að ná endum saman

Smálánin sem Hjördís tók til að ná endum saman ollu því að hún er nú föst í skuldafangelsi. 

„Smálán er skyndilán sem auðvelt er að taka þegar fjármagnið er lítið, þetta lán er of auðvelt að fá, þú sækir um, bíður eftir staðfestingu frá lánshæfnisstofnun og færð það inn á bankann þinn stuttu síðar, þetta verður svo að vana þegar líður á, þú hugsar: „Hey, það er kominn 20. og mig vantar smá aur, best að taka lán, ég borga það seinna…” Og hvað gerist að lokum? Þú tekur of mörg lán og endar á því að ná ekki að borga eitt þeirra, það fer í innheimtuferli og það veldur keðjuverkun og áður en þú nærð að átta þig á skalanum á vandamálinu ertu kominn í skuldafangelsi og þá ertu kominn í rosalega fátækt næstu árin eða jafnvel áratugi.“

Engin leið að spara 

Spyr Hjördís hvað valkyrjurnar í ríkisstjórn ætli að gera fyrir þá sem eru í skuldasúpu og lifa við fátækt.

„Það fólk sem reynir að vinna af sér skuldirnar með launum aðeins yfir fátæktarmörkum hefur engan rétt á fjárhagslegum stuðningi, því að ekkert mark er tekið á heildarútgjöldum og útgjöldum til skulda þegar tekið er mat á því hvort þú þurfir fjárhagslegan stuðning og þarft því að lifa á afgangi eða vonum á aðgangi að frískápum sem er ekki mikill og oftar en ekki þá er allur peningurinn búinn fyrir mánaðamót. Þetta fólk á sum hver erfitt með að spara, því það þarf að versla í matinn. Það á eftir að til dæmis kaupa bensín oftar en einu sinni í mánuðinum.

Fólk segir við þessa einstaklinga: „Af hverju reynið þið ekki að spara? Þú veist ekki fyrr en þú prófar, aurarnir eru fljótir að safnast þegar þið sparið.““

Hjördís segir suma svo heppna að þeir geti sparað eftir að allir reikningar eru borgaðir. Aðrir séu ekki svo heppnir og hún sé í þeim hópi. 

„Eftir að við borgum alla reikninga þá eigum við lítinn pening, og þurfum að reikna með hvað mikið við þurfum á hvoru og svo búum við á Akranesi og ég vinn í bænum annað slagið og þá er að eiga nóg bensín, þá eru peningarnir fljótir að klárast, við erum einnig með lítinn sjö mánaða strák sem þarf bleyjur og er byrjaður að fá mjólkurformúlu og mat, við sleppum við að kaupa mikið af mauki því við gerum okkar eigið mauk en annars er hann að fá venjulegan mat, vel maukaðan auðvitað, þetta allt kostar sitt.“

Hjördís segir að hún geti vissulega til dæmis notað fjölnota bleyjur á barnið til að spara pening.

„En þá erum við samt fátæk því allt auka fé fer á bílinn, mat og fleira, launin okkar er ekki beint til að hrópa húrra yfir.“

Enga vinnu að hafa í bænum

Fjölskyldan býr á Akranesi og er annað foreldrið í fæðingarorlofi og hitt að fara sumarvinnu á Akranesi, en bæði eru að leita að vinnu í bænum, til að safna pening. Erfitt er þó að finna vinnu, sem Hjördís segir sorglegt, þar sem Akranes hafi einu sinni blómstrað í atvinnulífi en sé núna kallaður svefnbær.

„Því enn og aftur má ekkert vera á landsbyggðinni því það kostar svo mikið að halda því uppi samkvæmt einhverjum sérfræðingum í stórfyrirtækjum og ríkisstjórn, en á sama tíma er mikið af barnafólki að flýja höfuðborgarsvæðið, því allt þar er ekki lengur hentugt að lifa fyrir barnafjölskyldur, biðlistar inn á leikskóla, biðlistar hjá dagmömmum, sem er sama sagan núna út fyrir miðborgina því einmitt, barnafólk er að flytja á landsbyggðina, og ekki mikið að byggjast upp þar nema með mikilli heppni.“

Skorar á aðra að tjá sig

Hjördís segir margar spurningar vakna hjá sér í þessu ástandi. Eins og af hverju sé ekki búið að hækka laun til að fjölga kennurum og dagforeldrum. Segir hún stjórnvöld ekki sjá þetta sem vandamál og betra sé að láta einkarekstur taka hægt og rólega yfir.

„Af hverju eru barnabætur svona lágar fyrir fólk? Því þær eru tekjutengdar og ef þú færð of mikið fyrir skatt þá missir fólk helminginn af barnabótunum.

Af hverju eru launin ekki nóg? Því skuldirnar eru háar, útgjöld eru há og ferðakostnaður er yfirleitt álitið sem persónulegt vandamál.

Hver er ástæðan fyrir að einstæðir foreldrar á Íslandi eru að berjast við að eiga nóg fyrir börnin sín? Leiga og önnur útgjöld eru mikil á einstæða foreldra, og þau þurfa oftar en ekki að leita til fjölskyldu, bæjarfélagsins og hjálparsamtaka til að fá mat fyrir börnin sín.“

Hjördís skorar á einstæða foreldra sem eiga engan rétt á fjárhagslegum stuðningi og að skrifa grein, og láta í sér heyra. Hún skorar einnig á þá sem búa á þeim 60 þúsund heimilum sem lifa við fátækt að gera slíkt hið sama og láta í sér heyra.

„Það er komið að okkur! Við eigum rétt á því að lifa lífi!“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda
Fréttir
Í gær

Jón Óttar kærði Ólaf á mánudag fyrir rangar sakargiftir

Jón Óttar kærði Ólaf á mánudag fyrir rangar sakargiftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugslysið á Indlandi: Telur að allir hafi farist og margir á jörðu niðri

Flugslysið á Indlandi: Telur að allir hafi farist og margir á jörðu niðri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskylda Víglundar fékk einstaka gjöf afhenta

Fjölskylda Víglundar fékk einstaka gjöf afhenta