fbpx
Sunnudagur 17.maí 2026
433Sport

Fyrrum stjarna lenti í ógeðslegu atviki – Umtalað myndband af því verið fjarlægt

433
Þriðjudaginn 5. maí 2026 18:30

Skjáskot úr myndbandinu, sem nú hefur verið fjarlægt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stephen Ireland, fyrrum leikmaður Manchester City og Stoke, varð fyrir alvarlegum meiðslum í leik með áhugamannaliðinu Wythenshawe Vets um helgina.

Ireland virtist fótbrotna eftir harkalega tæklingu í bikarúrslitaleik gegn South Liverpool Vets, en sjúkrabíll var kallaður inn á völlinn og leikurinn stöðvaður.

Myndband af atvikinu sýnir þungan árekstur þar sem heyra má mikinn smell þegar tæklingin á sér stað. Ireland lá eftir á vellinum á meðan hann fékk aðhlynningu frá sjúkraflutningamönnum áður en hann var fluttur á sjúkrahús.

Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er hann eins vel á sig kominn og hægt er miðað við aðstæður, en frekari upplýsingar um meiðslin liggja ekki fyrir.

Eiginkona hans, Jess, þakkaði fyrir stuðninginn eftir atvikið og hrósaði bæði áhorfendum og sjúkraflutningateyminu fyrir skjót viðbrögð.

Wythenshawe Vets hefur vakið athygli á tímabilinu, en þar hafa margir fyrrum úrvalsdeildarleikmenn spilað, þar á meðal Papiss Cisse, Danny Drinkwater og Antonio Valencia.

Liðið hefur gert frábærlega og unnið alla tíu leiki sína í deildinni.

Mikið er fjallað um atvikið í ensku miðlum í dag og þar var einnig deilt myndbandi af samfélagsmiðlum. Því hefur hins vegar verið eytt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar