fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Keyrði fullur og missir prófið í eitt ár

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 19:00

Dujon Sterling. Mynd: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dujon Sterling, leikmaður Rangers, hefur verið sviptur ökuleyfi sínu í 12 mánuði eftir að hafa ekið undir áhrifum áfengis og lent í árekstri í Glasgow.

Sterling, sem er 26 ára gamall, var stöðvaður eftir að hafa keyrt glannalega um miðborgina aðfaranótt 4. janúar og endað á því að keyra á vegrið nærri M8 hraðbrautinni. Hann reyndist vera nær þrefalt yfir leyfilegum mörkum.

Dómstóll sektaði hann einnig um 2250 pund, en hann játaði bæði ölvunarakstur og að hafa ekið af gáleysi.

Samkvæmt gögnum málsins sást hann aka á miklum hraða, skipta um akreinar án þess að gefa stefnuljós og keyra um stund á röngum vegarhelmingi áður en slysið varð.

Verjandi Sterling sagði hann iðrast mjög. Rangers hefur þegar sektað hann vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband

Þrjú ensk stórlið á eftir níu milljarða manni – Eitt þegar haft samband
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband

Neymar birtir afar tilfinningaþrungið myndband
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið

Barcelona veit af áhuga Aston Villa og skoða málið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur