fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Birta dramatískar myndir af því þegar sonur leikstjórans var handtekinn

Pressan
Þriðjudaginn 16. desember 2025 07:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nick Reiner, 32 ára sonur leikstjórans Rob Reiner og eiginkonu hans, Michele Singer, er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa myrt foreldra sína.

Rob og Michele fundust í blóði sínu á heimili sínu í Los Angeles á sunnudag, en Nick var handtekinn nokkru síðar af lögreglunni í Los Angeles sem naut aðstoðar fulltrúa US Marshals, elstu alríkisstofnunar Bandaríkjanna. Myndir sem teknar voru á vettvangi sýna handtökuna.

Greint var frá því í gær að Rob, Michele og Nick hefðu sótt jólafögnuð á heimili Conon O‘Brien á laugardagskvöld. Þar lentu þeir feðgar í einhvers konar rifrildi og herma heimildir Daily Mail að rifrildið hafi verið það hávært að gestir urðu þess varir.

Rob og Michele eru sögð hafa yfirgefið gleðskapinn skömmu síðar og leikur grunur á að Nick hafi farið á eftir foreldrum sínum þessa örlagaríku nótt.

Hann er sagður hafa tékkað sig inn á The Pierside Santa Monica-hótelið klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Segir Daily Mail frá því að blóð hafi fundist í herbergi hans.

Nick hefur barist við fíkn, geðræn veikindi og heimilisleysi á síðustu árum. Árið 2016, þegar hann var 22 ára, hafði hann farið í meðferð 17 sinnum.

Var það systir hans, Romy, sem kom að foreldrum sínum látnum eftir hádegi á sunnudag að staðartíma og segja bandarískir fjölmiðlar að hún hafi bent lögreglu á að skoða hvort Nick hefði haft eitthvað með morðin að gera.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump lætur sér fátt um finnast um stöðuna í Íran – „Mér er alveg sama“

Trump lætur sér fátt um finnast um stöðuna í Íran – „Mér er alveg sama“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Brúður gefur út viðvörun eftir skelfilega reynslu af brúðkaupshefð

Brúður gefur út viðvörun eftir skelfilega reynslu af brúðkaupshefð
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum