Fljótlega bað hollenska lögreglan almenning um aðstoð og birti myndir af svipuðu boxi og merkinu á því.
Rannsókn réttarmeinafræðinga leiddi í ljós að konan hafði verið myrt fyrir löngu. Viku eftir að líkið fannst sagði lögreglan að líklega væri um 37 ára ungverska konu að ræða sem hafði búið árum saman í Hollandi. Þá hafði 52 ára karlmaður verið handtekinn vegna málsins.
Rannsóknin leiddi í ljós að tilkynnt hafði verið um hvarf konunnar í mars 2021. Það voru ættingjar hennar sem gerðu það.
Hinn handtekni er tanntæknir frá Assen. Hann hefur játað að hafa kyrkt konuna árið 2020 og að hafa síðan falið lík hennar.
Í upphafi réttarhaldanna kom fram að hann hafði geymt líkið í bílskúr föður síns í tvö ár.
Ekki er vitað hvort líkið var í boxinu allan þennan tíma.
RTV Drenthe segir að eftir morðið hafi maðurinn stolið 5.500 evrum af reikningi konunnar.