
Breska blaðið Mirror fjallar um þetta óvenjulega mál sem að sögn hefur vakið talsverða athygli á Ítalíu.
Hinn látni, Riccardo Sansebastiano, 61 árs, fannst látinn á háalofti íbúðar elskhuga síns í Alessandria sumarið 2016. Hann hafði þá verið bundinn með reipum, handjárnum og ól um hálsinn í BDSM-leik sem parið hafði stundað árum saman.
Elskhugi hans, arkitektinn Gianna Damonte, sem nú er 67 ára, var árið 2022 sakfelld fyrir manndráp af gáleysi og dæmd í eins árs fangelsi eftir langvarandi réttarhöld.
Dómari taldi þó að Sansebastiano hefði sjálfur átt stóran þátt í dauða sínum þar sem hann hefði valið búnaðinn og sjálfur óskað eftir að leikurinn færi fram.
Nú hefur borgaralegur dómstóll í Alessandria úrskurðað að Damonte skuli greiða eiginkonu mannsins og þremur börnum þeirra háar skaðabætur.
Dómarinn Matteo Martoroni Venturini komst þó að þeirri niðurstöðu að hinn látni bæri sjálfur „60 prósenta ábyrgð“ á eigin dauða.
Samkvæmt frásögn saksóknara höfðu Damonte og Sansebastiano átt í ástarsambandi í meira en tvo áratugi. Þau hittust í íbúð hennar eftir hádegi þar sem kynlífsleikurinn hófst á háaloftinu. Damonte yfirgaf manninn síðan þar sem hann var bundinn við einhvers konar stólpa á meðan hún fór aftur til vinnu.
Þegar hún kom aftur um þremur klukkustundum síðar fann hún hann í alvarlegu ástandi. Fyrir dómi sagði Damonte að um hefði verið að ræða vel þekkt og samþykkt athæfi þeirra beggja sem þau hefðu stundað í um áratug.
„Þennan dag bað hann mig um að setja handjárn á sig, binda sig og setja ól um hálsinn. Ég var ekki sérstaklega hrifin af þessu, en þetta var það sem hann vildi,“ er haft eftir Demonte. Talið er að mikill hiti þennan dag hafi einnig haft sín áhrif á það hvernig fór.
„Ég fór upp á háaloftið og hann var þá að kveinandi af sársauka. Ég leysti hann úr böndunum og gaf honum vatn. Ég reyndi að endurlífga hann og hringdi síðan á sjúkrabíl, en það var of seint.“
Lögmaður fjölskyldunnar sagði eftir dóminn að þau væru ánægð með niðurstöðuna og vonuðust til að málinu væri þar með lokið.