fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 8. maí 2026 16:30

Sveinn Óskar ver myndbandið en samt var það fjarlægt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, segir myndband sem sýnir Miðflokksmann kýla pólitískan andstæðing, aðeins vera „sprell“ og „leiklist“. Myndbandið hefur verið harðlega gagnrýnt og Miðflokkurinn hefur nú fjarlægt það af síðunni sinni.

Vísir greindi fyrst frá þessu.

Það voru oddvitar meirihlutaflokkanna, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Samfylkingar, sem stigu fram og fordæmdu myndbandið sem Miðflokkurinn hafði birt á Tiktok síðu sinni. Í myndbandinu má sjá Miðflokksmann berja „libba“ eftir að hafa kosið Miðflokkinn í kosningum.

„Slík framsetning á ekki heima í lýðræðislegri umræðu. Að gera lítið úr ofbeldi eða setja það fram sem eðlileg viðbrögð gagnvart fólki sem hugsar öðruvísi, hefur aðrar pólitískar skoðanir eða lífssýn er bæði ábyrgðarlaust og hættulegt,“ segir í yfirlýsingu oddvitana. Var myndbandið fordæmt harðlega.

Segir síðuna fyndna

„Sumir eru bara of mikil snjókorn fyrir svona mál, við getum ekki stjórnað hugrenningum fólks út í bæ. Það var enginn sleginn. Þetta var leikið, sá sem er að leika þarna er á listanum okkar, þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu,“ er haft eftir Sveini Óskari í frétt Vísis um málið.

Sjá einnig:

Oddviti Miðflokksins harðorður gagnvart Dönum vegna Grænlands – Tekur undir með Donald Trump

Sveinn Óskar, sem vakti athygli í byrjun janúar þegar hann tók undir með Donald Trump þegar hann ásældist Grænland, segir síðuna ganga út á gleði og það sem sé fyndið. Hann komi sjálfur hins vegar ekki nálægt henni og sé ekki mikið á TikTok.

„Þetta er bara ritskoðun. Þetta er bara Sovét-Ísland í dag. Það má ekki neitt, mátt ekki segja neitt nema þú missir vinnuna. Endalaust verið að kæfa umræðu sem er erfið og fletja hana út. Við getum ekkert stjórnað túlkun einhverra sem eru andstæðingar okkar í pólitík,“ er haft eftir Sveini Óskari.

Umrætt myndband hefur síðan verið fjarlægt af síðu Miðflokksins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Innflytjendur 19,6% íbúa landsins – Voru 7,4% fyrir 14 árum

Innflytjendur 19,6% íbúa landsins – Voru 7,4% fyrir 14 árum
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Rússar óttuðust njósnir og slökktu á öryggismyndavélakerfi Pútíns

Rússar óttuðust njósnir og slökktu á öryggismyndavélakerfi Pútíns
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“
Fréttir
Í gær

Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta – „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“

Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta – „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“
Fréttir
Í gær

Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um

Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um