fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 08:00

Umboðsmaður leigusalans þurfti lögreglufylgd inn í íbúðina. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að tveir einstaklingar sem leigðu íbúð skuli greiða leigusalanum vangoldna leigu auk dráttarvaxta. Fóru leigjendurnir úr íbúðinni án þess að skila henni formlega af sér og skildu hana eftir stórskemmda, fulla af húsgögnum og rusli og hreinlega óíbúðarhæfa.

Leigusalinn gerði ótímabundinn leigusamning við leigjendurna frá 1. júlí 2024 um leigu þeirra á íbúð hans. Krafði leigusalinn leigendurna um leigu vegna tímabilsins 1. júní til 7. júlí 2025.

Fram kom í kæru leigusalans að samkomulag hafi verið um að leigjendurnir myndu rýma íbúðina eigi síðar en 30. júní 2025. Þeir hafi þó ekki skilað íbúðinni og hún verið opin þegar umboðsmaður leigusalans hafi farið í hana 7. júlí 2025 í viðurvist lögreglu. Íbúðin hafi verið stórskemmd, óíbúðarhæf, full af húsgögnum og sorpi sem og óþrifin. Engar greiðslur hafi borist frá leigjendunum.

Svöruðu ekki

Kærunefnd húsamála óskaði ítrekað eftir greinargerð frá leigjendunum sem urðu ekki við því.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir að þar með sé aðeins hægt að byggja á sjónarmiðum leigusalans og gögnum frá honum.

Nefndin segir að gerður hafi verið ótímabundinn leigusamningur en samkomulag verið gert um að leigutíma ætti að ljúka 30. júní 2025. Íbúðinni hafi þó ekki verið skilað á umsömdum degi og að endingu hafi umboðsmaður leigusalans farið í íbúðina 7. júlí þess árs. Hafi þá komið í ljós að íbúðin hafi ekki verið tæmd en þessu til staðfestingu liggi fyrir lögregluskýrsla.

Einnig liggi fyrir samskipti aðila þar sem leigusalinn hafi ítrekað beiðni um leigugreiðslu vegna júnímánaðar. Fallast verði því á kröfu leigusalans um að leigjendunum beri að greiða leigu vegna tímabilsins 1. júní til þess dags þegar leigusalinn var kominn með umráð íbúðarinnar 7. júlí 2025, samtals að fjárhæð 457.713 krónur. Í húsaleigulögum sé kveðið á um að hafi leigjandi ekki gert skil á leigunni innan sjö sólarhringa frá gjalddaga sé leigusala rétt að krefjast hæstu lögleyfðu dráttarvaxta af henni til greiðsludags. Á grundvelli þessa ákvæðis beri jafnframt að fallast á dráttarvaxtakröfu leigusalans.

Hvernig ganga mun að innheimta þetta hjá leigjendunum er erfitt að segja til um en úrskurðir nefndarinnar eru aðfararhæfir án þess að til þurfi að koma dómur. Það er því mögulegt að reyna að innheimta skuldina með aðför en leigjendurnir geta skotið úrskurðinum til dómstóla en ekki virðist líklegt að þeir geri það úr að því þeir létu málið ekki til sín taka fyrir nefndinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“

Sólveig Anna stígur fram með ákvörðun sína: „Stillið ykkur um að kalla mig fávita, aumingja eða drullusokk“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“

Brynhildur segir nýja tegund fitufordóma ryðja sér til rúms: „Má ég vera feit?“
Fréttir
Í gær

Stefnir dómsmálaráðuneytinu vegna meints eineltis og pyntinga á Hólmsheiði

Stefnir dómsmálaráðuneytinu vegna meints eineltis og pyntinga á Hólmsheiði