

Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er fastráðin við Þjóðleikhúsið en fór í veikindaleyfi fyrir um einu og hálfu ári eftir að líkaminn hennar gafst upp. Hún hlakkaði til að snúa til baka er leyfinu lauk um mánaðamótin en nú hefur hún fengið þau skilaboð frá leikhúsinu að hún geti ekki snúið til baka nema að undangengnu starfshæfismati.
Steinunn furðar sig á þessu í færslu á Facebook, en starfshæfismatið á að fara fram hjá einkafyrirtæki en ekki hjá læknum sem þekkja til sögu leikkonunnar.
„Ég er svo lánsöm að vera ríkisstarfsmaður fastráðinn við Þjóðleikhúsið og gat því farið í veikindaleyfi þegar skrokkurinn á mér gafst upp fyrir einu og hálfu ári síðan. Þar komu til meiðsli við vinnu í Þjóðleikhúsinu og áratuga líkamlegt vinnuálag (leikarar, dansarar, íþróttafólk) plús 4 börn, fársjúkur eiginmaður og ummönnun aldraðs föður. Æ bara svona konuvæl
Nú er ég öll að hressast og lauk mínu veikindaleyfi í apríllok og hlakka til að lesa glænýtt leikrit í vor eftir mesta leikskáld þjóðarinnar, btw leikrit sem hefur legið allt of lengi í skúffu Þjóðleikhússtjóra! Sem er skandall!
En þá er mér gert af Þjóðleikhúsi Íslendinga, fyrst leikara, að fara í starfshæfimat hjá einkafyrirtækinu Auðnast ehf! hjá læknum sem ég hef aldrei hitt og hafa ekkert haft af mér að segja! Ekki veit ég hvernig það fólk á að leggja mat á nokkurn skapaðan hlut og mér finnst það harla skrýtið að hvorki ég sjálf sé talin heppileg heimild og ekki minn læknir, sem hefur fylgt mér í veikindaleyfi.“
Veltir Steinunn því fyrir sér hvers vegna henni sé fyrst leikara gert að gangast undir slíkt mat og spyr hvort Þjóðleikhúsið sé þarna að segja henni að það hafi ekki áhuga á að fá hana aftur til starfa.
„Þjóðleikhúsið vill kannski ekki að ég svona pólitískt toxísk miðaldra kona fái að stíga á svið en allavega. Kannski er best fyrir Þjóðleikhúsið að losa sig við þessa skessu“
Spyr Steinunn aðra ríkisstarfsmenn hvernig svona mat fer fram. Þarf hún að gangast undir þrekpróf? Verður dregið úr henni blóð? Eða þarf hún kannski að syngja eða fara með einræðu?
„Ekki er öll vitleysan eins!“