fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fréttir

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í yfirstandandi kosningabaráttu hafa ýmis skemmtileg myndbönd litið dagsins ljós þar sem frambjóðendur benda á það sem betur má fara í samfélaginu.

Dæmi um slíkt er til dæmis þegar Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, fór í bíltúr niður göngugötuna í Austurstræti á nagladekkjunum.

Bjarni Fritzson, rithöfundur, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í borginni, birtist í skemmtilegu myndbandi á Facebook í morgun þar sem hann freistar þess að hjóla með ruslið sitt í endurvinnslustöð Sorpu.

„Heyrðu, ég veit ekki hvort þú varst búinn að frétta það en Reykjavíkurborg var að opna glænýjan hjólastíg við Sorpu,” segir Bjarni sem er Breiðhyltingur í húð og hár.

„Þannig að núna get ég passað betur upp á kolefnissporið mitt, sinnt bíllausa lífsstílnum mínum ennþá betur og hjólað með allt ruslið í Sorpu!,” sagði Bjarni.

Í myndbandinu sést svo þegar Bjarni fer á hjólið með nokkra poka af rusli og kemur sér á Sorpu nokkuð auðveldlega – enda í fínu formi eftir farsælan handboltaferil.

Bjarni fær þó ákveðinn skell þegar starfsmaður bendir honum á að óheimilt er að losa timbur á úrvinnslustöð Sorpu í Breiðholti og þarf hann því að fara á næstu stöð sem er á Sævarhöfða.

„En, ég meina, ég fæ bara góða útiveru út úr því og það er ekki nema svona 30 mínútna hjólatúr, en hvað gerir maður ekki fyrir bíllausan lífsstíl?”

Myndband Bjarna vakti talsverða athygli á Facebook og sitt sýndist hverjum um uppátæki hans. Ýmsar spurningar vöknuðu þó hjá virkum í athugasemdum.

„Af hverju tókstu ekki kassana í sundur? Af hverju varstu að stytta þér leið yfir nýlagt gras að mér sýndist? Og af hverju varstu ekki með hjálm,“ spurði til dæmis einn.

Hér að neðan má svo sjá annað myndband frá Bjarna þar sem hann freistar þess að spila golf á „stærsta golfvelli sögunnar“ þar sem eru yfir 30 þúsund holur. Sjón er sögu ríkari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“

Íbúar langþreyttir á rútum á Skólavörðuholti – „Þessi staða orðin algjörlega ólíðandi“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan

Gífurlega stórt kókaínmál fyrir austan
Fréttir
Í gær

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“

Gísli Rúnar með lausn á stóra nærbuxnavandamálinu: „Við höfum verið kölluð öllum heimsins nöfnum inni í sturtunni“
Fréttir
Í gær

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á

424 þúsund krónur hurfu af korti Bjarna – Svo kom svarið frá bankanum sem hann átti ekki von á
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur

Þorsteini var brugðið þegar bandarískur vinur hans sendi honum tvær greinar um konur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði í baráttu við SAS – Krafðist 6,5 milljóna en aðeins tæplega 400 þúsund áttu að renna til farþeganna