fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Pressan

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Pressan
Föstudaginn 8. maí 2026 20:30

Eru dyrnar hjá henni opnar eða lokaðar?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er oft hægt að skipta hlutunum með andstæðum, til dæmis: strönd eða fjall, kvikmynd eða þáttaröð, eggjakaka með lauk eða eggjakaka án lauks. Það eru til margar mismunandi aðferðir til að skipta fólki í flokka. Ein sú áhugaverðasta snýst um hvernig við sofum, með svefnherbergisdyrnar opnar eða lokaðar.

Þetta er umræða sem tekur líklega við sér þegar sumarið heilsar, nema auðvitað fólk sé með loftkælingu á heimilinu. En á heitum nóttum, án loftkælingar, er næstum nauðsynlegt að láta dyrnar standa opnar til að tryggja loftflæði í gegnum herbergið.

En á bak við þennan, að sjá mjög svo óáhugaverða, vana leynist svolítið meira. Augljósasta skýringin snýr að þörfinni fyrir nánd, einkalíf og öryggi í eigin herbergi.

En svo eru líka sálfræðilegar ástæður sem geta legið að baki þessu ef miða má við umfjöllun gríska miðilsins Enikos. Fram kemur að fólk, sem sefur með dyrnar lokaðar, eigi sex persónueinkenni sameiginleg.

Þörf fyrir persónulegt öryggi – Þetta snýst um andlegt og líkamlegt öryggi. Að loka dyrunum veitir tilfinningu um að maður hafi stjórn á hlutunum og að allt sé eins og það á að vera, dyrnar eru vörn gegn utanaðkomandi áhrifum. Sálfræðingurinn Abraham Maslow segir að þetta sé aðferð til að uppfylla grunnþörf fyrir öryggi.

Ánægja með einveru – Að geta dregið sig í hlé og notið augnabliksins aleinn er mikilvægt. Að loka dyrunum þegar sofið er, er merki um sterk skil á milli einstaklingsins og umheimsins og veitir þögn og hugulsemi rými.

Hleðsla – Persónuleikinn leikur einnig lykilhlutverk varðandi þennan vana. Þetta snýst ekki endilega um feimni eða að vera félagsskítur, heldur um hvernig maður hleður batteríin. Að loka dyrunum skapar rólegt umhverfi til sjálfsíhugunar og andlegrar skoðunar.

Sjálfsumhyggja – Að hugsa um sjálfan sig tengist þörfinni fyrir að skapa öruggt umhverfi þar sem utanaðkomandi stressvaldar komast ekki inn. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar frá bandaríska National Institute of Mental Health geta venjur á borð við þessa dregið úr stressi og bætt andlega líðan.

Sjálfstæði – Að loka dyrunum sýnir sjálfstæði. Þú ert með þitt eigið rými og það ert þú sem ræður hver má koma þangað inn. Þetta veitir sterka tilfinningu um að maður hafi stjórn á hlutunum.

Leitin að frelsi – Þrátt fyrir að það sé ákveðin þversögn í því, þá eru lokaðar dyr einnig tákn um frelsi. Þær skapa rými þar sem maður getur verið maður sjálfur án þess að vera undir þrýstingi utan frá, öruggur staður fyrir ró, frelsi og áreiðanleika.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax
Pressan
Fyrir 5 dögum

Undirbúa sig undir fjöldajarðsetningar á Gotlandi

Undirbúa sig undir fjöldajarðsetningar á Gotlandi