fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Svissneskir jöklar hopa og skila mannabeinum og flugvélarflaki

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 20. ágúst 2022 19:00

Chessjen jökullinn. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklir hitar hafa verið í Ölpunum í sumar og það hefur bætt enn á bráðnun jökla þar. Svissneskir jöklar eru þar engin undantekning og hafa þeir bráðnað og hopað í sumar með þeim afleiðingum að mannabein og flugvélaflak komu undan þeim.

Kennsl hafa ekki verið borin á beinin. Flugvélin hafði verið týnd í hálfa öld.

Tveir franskir fjallgöngumenn fundu mannabein á Chessjen jöklinum í Valais kantónunni þegar þeir voru á leið yfir jökulinn. Beinin voru flutt til byggða með þyrlu. Beinin fundust nærri gamalli leið sem hætt var að nota fyrir um 10 árum. Fjallgöngumennirnir fundu beinin líklega vegna þess að þeir notuðust við gamalt kort á ferð sinni. Lítið var eftir af líkinu nema bein og er talið að viðkomandi hafi látist á áttunda eða níunda áratugnum.

Viku áður fannst lík á Stockji jöklinum norðvestan við Matterhorn. DNA-rannsókn verður gerð á líkinu og beinunum sem fyrr er getið. The Guardian segir að líkið hafi verið nokkuð heillegt og í fatnaði sem var vinsæll á níunda áratugnum.

Lögreglan heldur skrá yfir fólk sem hefur týnst á þessu svæði síðan 1925. Um 300 slík tilvik hafa verið skráð.

Í fyrstu viku ágúst fann leiðsögumaður flugvélarflak. Það er flak af vél sem hrapaði ofan við Aletsch jökulinn í júní 1968. Þrír voru um borð í vélinni þegar hún hrapaði og létust þeir allir. Líkin voru sótt á sínum tíma en flakið ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tunglið fær sitt eigið tímabelti

Tunglið fær sitt eigið tímabelti