fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Vann á sama kaffihúsinu í sjö ár – Þrjár mínútur kostuðu hana starfið

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. ágúst 2022 22:00

Starbucks. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tæp sjö ár starfaði Joselyn Chuquilanqui hjá bandarísku kaffihúsakeðjunni Starbucks. Dag einn mætti hún þremur mínútum of seint og var rekin. Hún hafði sjálf átt von á að verða rekin því hún segir að keðjan hafi leitað að ástæðu til að reka hana vegna baráttu hennar fyrir að starfsfólk Starbucks í Bandaríkjunum gangi í stéttarfélag. Hún hafði hvatt samstarfsfólk sitt á kaffihúsinu í New York, þar sem hún starfaði, til að ganga í stéttarfélag.

BBC skýrir frá þessu. „Þetta var ákveðið form hefndar. Ég hef aldrei séð neinn vera rekinn fyrir að koma undir fimm mínútum of seint,“ er haft eftir henni.

Hún sagði að fljótlega eftir að hún fór að blanda sér í baráttuna fyrir stofnun stéttarfélags hafi yfirmaður hennar byrjað að refsa henni þegar hún mætti nokkrum mínútum of seint en á sama tíma hafi samstarfsfólki hennar ekki verið refsað fyrir að koma of seint.

Hún er ekki eini starfsmaðurinn sem hefur fengið sparkið hjá Starbucks vegna baráttu fyrir aðild starfsfólks að stéttarfélögum. BBC segir að rúmlega 75 starfsmenn keðjunnar hafi verið reknir úr starfi vegna baráttu fyrir að starfsfólkið gangi í stéttarfélög.

Talsmenn Starbucks, sem rekur rúmlega 9.000 kaffihús í Bandaríkjunum, vísa því á bug að um hefnd sé að ræða af hálfu fyrirtækisins. Keðjan hefur lokað nokkrum kaffihúsum þar sem starfsfólk hafði samþykkt að ganga í stéttarfélög.

Forstjóri keðjunnar, Howard Schultz, hefur látið gagnrýnin orð falla þegar rætt er um stéttarfélög og meðal annars sagt að fyrirtækið hafi ekki trú á að þriðji aðilinn (stéttarfélög) eigi að vera í fararbroddi fyrir starfsfólkið og því berjist fyrirtækið um hjarta og huga starfsfólksins og muni ná árangri í þeim efnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fékk 18 ára fangelsi fyrir að kasta logandi dínamitstöng í kærastann sinn

Fékk 18 ára fangelsi fyrir að kasta logandi dínamitstöng í kærastann sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð