fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

9.000 Ástralar fastir á Indlandi – Komast ekki heim

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 21. maí 2021 06:59

Kórónuveiran er í mikilli sókn í Ástralíu þessa dagana. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir eru látnir, 173 börn eru án foreldra sinna og eru í hópi 9.000 Ástrala sem eru á biðlista eftir að komast með flugi heim til Ástralíu frá Indlandi en þangað er ekki auðvelt að komast. Áströlsk stjórnvöld reka grjótharða stefnu í tengslum við heimsfaraldur kórónuveirunnar, svo kallaða „nononsense“ stefnu.

Landið er meðal þeirra landa sem hafa sloppið einna best í gegnum faraldurinn. Allt frá því í mars á síðasta ári hafa stjórnvöld nýtt sér staðsetningu landsins sem er heil heimsálfa og eyja langt úti í hafi.  Þau hafa einfaldlega lokað landinu og ekki er útlit fyrir að hvikað verði frá því. Landið verður lokað fram á mitt næsta ára nema hvað Ástralar og fólk með varanlegt dvalarleyfi má koma til landsins. Almenn sátt hefur verið um þessa stefnu en nú er farið að bera á gagnrýni á hana frá atvinnulífinu og sumum stjórnmálamönnum. Þetta kom berlega í ljós í apríl þegar ríkisstjórnin ákvað að banna allar komur fólks frá Indlandi í þrjár vikur. Bannið náði einnig til ástralskra ríkisborgara. Brot á þessu banni varðaði allt að fimm ára fangelsi.

Bannið var mikið áfall fyrir þann stóra hópa Ástrala sem er af indversku bergi brotinn en í gegnum faraldurinn hefur það verið viðkvæðið að ástralskir ríkisborgarar gætu alltaf komið heim. En nú eru um 9.000 Ástralar fastir á Indlandi vegna bannsins og það þrátt fyrir að því hafi verið aflétt.

Flugsamgöngur á milli landanna hófust aftur á laugardaginn. Þegar fyrsta vélin frá Indlandi lenti í Darwin voru 70 laus sæti í henni. Fólkið sem hafði greitt fyrir þau varð eftir á Indlandi því það greindist með kórónuveiruna skömmu fyrir brottför, svo skömmu áður að ekki var tími til að selja öðrum sætin.

Nú hafa tveir Ástralar látist af völdum COVID-19 á Indlandi. Þeir komust ekki heim og smituðust af kórónuveirunni og létust síðan. 173 börn eru föst á Indlandi án foreldra sinna. Sum höfðu verið í fríi hjá öfum sínum og ömmum. Það stefnir í að þau hitti foreldra sína ekki á næstunni en sum þeirra hafa ekki séð foreldra sína í tæp tvö ár. Fyrir þá 9.000 Ástrali, sem eru á biðlista eftir flugi heim, er útlitið dökkt. Fáar flugferðir eru í boði og miðað við framboðið þessa dagana mun taka um eitt ár að koma þeim öllum heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig