fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 5. maí 2026 16:30

Lundúnalögreglan vill hafa hendur í hári Bruckner fyrir 20 ára afmæli málsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lundúnalögreglan reynir nú að fá hinn þýska Christian Bruckner framseldan vegna mannráns og morðs á Madeleine McCann. McCann hvarf í Portúgal fyrir 19 árum síðan.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Í fréttinni kemur fram að rannsóknarlögreglumenn hjá Lundúnalögreglunni, Scotland Yard, séu nú að reyna að fá Bruckner framseldan frá Þýskalandi. Yrði hann ákærður fyrir mannrán og morð og réttað yfir honum í Bretlandi.

Bruckner hefur lengi verið grunaður í máli McCann, sem var þriggja ára rænt af hótelherbergi í Algarve í Portúgal árið 2007. Bruckner er margdæmdur kynferðisbrotamaður sem var á staðnum og hefur verið dæmdur fyrir aðra glæpi framda í Portúgal.

Sjá einnig:

Hinn grunaði í máli Madeleine McCann gengur nú laus

Vandamálið er hins vegar að samkvæmt þýskum lögum má ekki framselja ríkisborgara út fyrir Evrópusambandið, og eins og flestir vita þá er Bretland ekki lengur hluti af Evrópusambandinu. Er því líklegt að yfirvöld í Þýskalandi myndu einfaldlega hafna beiðni frá Bretum um framsal Bruckner.

Plan B

Lundúnalögreglan er með vara áætlun ef Þjóðverjar vilja ekki framselja Bruckner yfir Ermarsundið. Það er að hann verði þá framseldur til Portúgal og réttað verði yfir honum þar í landi. Myndi lögregla og saksóknari í Bretlandi vinna með portúgölskum yfirvöldum, meðal annars við upplýsingaöflun.

Sagt er að lögreglan leggi sérstaklega mikla áherslu á að leysa málið og rétta yfir Bruckner þar sem málið er að verða 20 ára gamalt og hefur legið á bresku þjóðinni eins og mara allan þennan tíma. Þó svo að litið sé á málið sem mannrán og morð þá er það enn þá formlega skilgreint sem mannshvarf.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sex ára drengur missti báða handleggina eftir árás bolabíta – „Ég þarf að mata hann núna“

Sex ára drengur missti báða handleggina eftir árás bolabíta – „Ég þarf að mata hann núna“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Móðir barns sem varð fyrir ofbeldi á leikskóla tjáir sig – „Kona sem átti að passa litla strákinn minn brást honum hryllilega“

Móðir barns sem varð fyrir ofbeldi á leikskóla tjáir sig – „Kona sem átti að passa litla strákinn minn brást honum hryllilega“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“
Fréttir
Í gær

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám