fbpx
Sunnudagur 15.febrúar 2026
Pressan

Látinn laus eftir 68 ár í fangelsi

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 26. febrúar 2021 23:00

Joe á tveimur aldursskeiðum. Mynd:Departement of Correction Pennsylvania

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var ekki mikið sem Joe Ligon tók með sér þegar hann gekk út úr fangelsi í Pennsylvania í Bandaríkjunum nýlega eftir 68 ár á bak við lás og slá. Hann hafði 12 kassa með sér með fátæklegum jarðneskum eigum sínum og auðvitað nýfengið frelsið.

Hann á það dapurlega met að hafa setið lengst allra á bak við lás og slá í Bandaríkjunum. CNN og fleiri miðlar skýra frá þessu. Hann var aðeins 15 ára þegar hann lenti i fangelsi árið 1953 og þar sat hann þar til nýlega og afplánaði lífstíðarfangelsisdóm. Hann eyddi sem sagt stórum hluta unglingsáranna í fangelsi og öllum fullorðinsárunum þar til nú.

Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi 1953 fyrir ránsmorð. Það var ekki fyrr en tæpum sjötíu árum síðar sem réttarvörslukerfið komst að þeirri niðurstöðu að dómurinn yfir honum bryti gegn stjórnarskránni. Ligon hefur alltaf neitað að hafa myrt nokkurn mann. Það var ríkisstjórinn í Pennsylvania sem lét hann lausan.

Mynd tekin 1963. Mynd: Departement of Correction Pennsylvania

„Þetta er alveg nýtt fyrir mig. Þetta var ekki til þá,“ sagði Ligon þegar hann var laus úr fangelsinu og stóð úti á götu í Philadelphia og horfði á skýjakljúfana.

Hann á erfiða tíma í vændum. Engir af þeim ættingjum og vinum sem hann þekkti áður en hann lenti í fangelsi eru á lífi. Það eina sem hann hefur er ein frænka og hópur annarra langtímafanga sem hann kynntist í fangelsinu og hafa lokið afplánun refsinga sinna. Hann nýtur stuðnings samtakanna Youth Sentencing & Reentry Project (YSRP) sem munu aðstoða hann við að greiða reikningana sína, versla inn og annað sem hann þarf að gera. „Hann er ótrúlega ánægður og hissa á þeim breytingum sem hafa orðið. En hann saknar látinna ættingja sinna,“ sagði Eleanor Myers, sem er ráðgjafi hjá YSRP.

Mynd tekin 1975. Mynd:Departement of Correction Pennsylvania

Í fangelsinu starfaði Ligon sem húsvörður og lærði að lesa og skrifa. Hann fylgdist með stríðum, fjármálakreppum, tískunni og uppreisnargjarnri æskunni í litla sjónvarpinu sínu.

Nýleg mynd af Joe. Mynd:Departement of Correction Pennsylvania

Dómurinn yfir honum var kveðinn upp eftir að hann og fleiri unglingar fóru í ránsferð 1953. Tveir voru skotnir til bana og enginn vildi kannast við að hafa skotið þá, ekki heldur Ligon. Hann staðhæfði að sá sem hann skaut hafi lifað af. Dómstóllinn komst að annarri niðurstöðu og dæmdi hann í lífstíðarfangelsi. Honum var boðin reynslulausn 2017 gegn því að hann myndi verða undir eftirliti það sem hann ætti eftir ólifað. Það vildi hann og krafðist þess að fá fullt frelsi eða ekkert. Ekkert fékk honum haggað í þessu og það skilaði þeim árangri að á síðasta ári úrskurðaði dómari að dómurinn yfir honum hefði brotið gegn stjórnarskránni  því ekki hefði mátt dæma ungling í lífstíðarfangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ef kötturinn sefur í skauti þér, þá er ástæðan líklega önnur en þú heldur

Ef kötturinn sefur í skauti þér, þá er ástæðan líklega önnur en þú heldur
Pressan
Í gær

Óvæntar vinsældir leikfangahests – Mistökum í framleiðslunni að þakka

Óvæntar vinsældir leikfangahests – Mistökum í framleiðslunni að þakka
Pressan
Í gær

110 ára maður skýrir frá leyndarmáli langlífisins – Gerir þetta á hverjum morgni

110 ára maður skýrir frá leyndarmáli langlífisins – Gerir þetta á hverjum morgni
Pressan
Í gær

Það er aldrei of seint – Enn ein snilldarástæðan fyrir að hætta að reykja

Það er aldrei of seint – Enn ein snilldarástæðan fyrir að hætta að reykja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna tók kókaín í nefið af klósettsetum

Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna tók kókaín í nefið af klósettsetum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Auglýsing i Ofurskálinni vakti óhug og harða gagnýni – „Ég hef aldrei séð auglýsingu rústa orðspori fyrirtækis áður“

Auglýsing i Ofurskálinni vakti óhug og harða gagnýni – „Ég hef aldrei séð auglýsingu rústa orðspori fyrirtækis áður“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vendingar í máli mannsins sem steinrotaði vin sinn óvart

Vendingar í máli mannsins sem steinrotaði vin sinn óvart
Pressan
Fyrir 2 dögum

FBI birtir nýjar upplýsingar um mannræningjann og hækkar verðlaunaféð

FBI birtir nýjar upplýsingar um mannræningjann og hækkar verðlaunaféð