fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Danir reikna með að bólusetja árlega gegn kórónuveirunni

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 23. desember 2021 17:00

Bóluefni gegn Ómíkron verður tilbúið í mars segir forstjóri Pfizer.Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki er útilokað að eldra fólk og fólk í áhættuhópum verði bólusett árlega gegn kórónuveirunni í framtíðinni. Þetta sagði Søren Brostrøm, landlæknir, á fréttamannafundi í gær.

Hann sagðist ekki geta sagt til um þetta með fullri vissu en heilbrigðisyfirvöld séu að undirbúa þetta sem möguleika í framtíðinni. Einnig sé verið að íhuga að gefa fólki fjórða skammtinn af bóluefni, það er að segja örvunarskammt númer tvö.

„Það er of snemmt að segja til um hvernig þetta verður en ef þetta verður gert þá erum við reiðubúin til þess. Það er enginn vafi á að það eru bóluefnin sem eiga að bjarga okkur frá álagi vegna faraldursins í framtíðinni,“ sagði hann.

Virkni bóluefnanna er tímabundin, það er að segja áhrif þeirra dvína með tímanum og ekki er öruggt að fólk sleppi við smit þótt það sé bólusett en almennt veikist fólk minna ef það er bólusett.

Á fundinum var tilkynnt að ákveðið hafi verið að flýta örvunarbólusetningu 18 til 39 ára en eldri aldurshópar geta nú þegar fengið örvunarskammt.

Brostrøm sagði að í janúar eða febrúar verði skoðað hvort einhverjir hópar þurfi að fá fjórða skammtinn, engin ákvörðun hafi verið tekin um það enn sem komið er en málið verði skoðað vel.

Ísraelsk yfirvöld tilkynntu á þriðjudaginn að öllum eldri en sextíu ára verði boðið upp á fjórða skammtinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?