fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Pressan

Óttast að 10.000 manns látist mánaðarlega af völdum COVID-19 á Ítalíu ef ekkert verður að gert

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. nóvember 2020 07:00

Sjúklingi sinnt á gjörgæsludeild. Mynd: EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalskir læknar segja að búast megi við 10.000 aukalegum dauðsföllum í mánuði hverjum af völdum COVID-19 ef ekki verður gripið til harðari sóttvarnaaðgerða um allt land. Ríkisstjórnin undirbýr nú harðari aðgerðir í fjórum héruðum þar sem faraldurinn þykir kominn á hættulegt stig, það eru Campania, Liguria, Abruzzo og Umbria.

En samkvæmt frétt The Guardian þá þykir samtökum ítalskra lækna ekki nógu langt gengið og hvetja til enn harðari aðgerða því sjúkrahús séu orðin full og erfitt sé að finna pláss fyrir kórónuveirusmitaða sjúklinga.

Sjúkrabílar þurfa að fara í röð við bráðamóttökur í mörgum bæjum og borgum og fólk hefur þurft að sætta sig við að vera í bílum sínum á meðan það fær meðferð við COVID-19. Dæmi er um 78 ára konu sem þurfti að bíða í sjúkrabíl í 26 klukkustundir áður en hægt var að taka hann inn á sjúkrahús.

Ítalía nálgast nú eina milljón smita frá upphafi heimsfaraldursins og rúmlega 41.000 hafa látist af völdum COVID-19 sem er mesti fjöldinn í einu landi á meginlandi Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“
Pressan
Fyrir 3 dögum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir