

Í dag hefst vitundarvakning Barnaheilla – Save the Children ÉG LOFA sem stendur frá 20.-29. apríl. Með herferðinni vilja Barnaheill vekja fólk til vitundar um umfang kynferðisofbeldis gegn börnum á Íslandi og hvetja alla til að leggja sitt af mörkum til að útrýma slíkum brotum úr samfélaginu.
Of mörg börn eru beitt kynferðisofbeldi og alltof fá þeirra segja frá ofbeldinu. Hér eru nokkrar staðreyndir.
Barnaheill hafa einnig unnið bækling og fræðsluefni um kynferðisbrot á milli systkina sem birtist á vef samtakanna í dag, og markar þannig upphaf herferðarinnar. Algjör þagnarmúr hefur umlukið slík brot, og fá úrræði eru í boði fyrir fjölskyldur og börn sem eru í þeim aðstæðum. Kynferðisbrot á milli systkina eru algengari en flesta grunar, og það er mikilvægt að opna á umræðu um þessi mál.
Apríl er alþjóðlegur mánuður vitundarvakningar um kynferðisbrot gegn börnum, og þetta er í annað sinn sem Barnaheill efna til herferðar til að vekja athygli á málaflokknum. Með því að tala opinskátt um kynferðisofbeldi gegn börnum og með því að miðla upplýsingum og fræðslu þá aukum við líkur á því að fleiri börn segi frá, og erfiðara verður fyrir þá sem brjóta af sér að fela sig í skjóli þagnarinnar.
Með herferðinni eru Barnaheill að hvetja fólk virkan þátt með okkur með því að gefa loforð um að vernda börn gegn kynferðisofbeldi og rjúfa þögnina sem umlykur þessi mál.
Sumargjöfin í ár getur verið loforð til barnanna okkar um að hlusta á þau, veita þeim stuðning, bregðast við, og tilkynna grun um ofbeldi.
Mánudaginn 27. apríl verður svo boðið upp á opinn fræðslufund um kynferðisofbeldi gegn börnum. Rætt verður um mikilvægi þess að setja upp fjölbreyttar hindranir fyrir mögulega gerendur og vera vakandi fyrir rauðu ljósunum bæði hjá börnum og fullorðnum. Fræðslufundurinn er hugsaður fyrir foreldra, forsjáraðila og fólk sem vinnur með eða í þágu barna, og sér Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna- og kynheilbrigðisverkefna, Barnaheilla um fræðsluna.