fbpx
Laugardagur 01.apríl 2023
Fréttir

Saka Eflingu um hótanir og meina þeim aðgang að hótelunum

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 15:00

Mynd: Íslandshótel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsvarsmenn Íslandshótela tóku þá ákvörðun nú eftir hádegi í dag að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín, eftir að verkfallsverðir tóku að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem sannarlega eru ekki í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Íslandshótelum.

Í tilkynningunni segir að Íslandshótel hafi sýnt kröfum Eflingar um verkfallsvörslu skilning, jafnvel þó lög kveði ekki á um slíkt, og samþykktu að tveir aðilar frá félaginu gætu sinnt verki sínu og fengju aðgang til eftirlits. Segir ennfremur að Efling hafi svarað boðinu með því að krefjast þess að stór hópur Eflingarfélaga ættu að fá fullan aðgang að hótelunum, en slíku hafi verið hafnað með hliðsjón af því að gestir hótelanna ættu skilið ró og næði, jafnvel þó verkfall væri í gangi.

Verkfallsverðir Eflingar, sem mættu á hótel Íslandshótela eftir hádegi í dag, hófu svo að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem voru við störf, sem og yfirmönnum sem löglega voru að sinna sinni vinnu, aðgerðum ef þeir leggðu ekki niður störf. Rétt er að ítreka og undistrika að starfsmenn annarra stéttarfélaga eru sannarlega ekki í verkfalli og voru með engu móti að ganga í störf Eflingarfólks. Efling hefur með þessu farið langt yfir eðlileg mörk og í ljósi aðgerðanna hafa forsvarsmenn Íslandshótela nú ákveðið að taka fyrir frekari heimsóknir fulltrúa Eflingar.

Sú ákvörðun verður að sjálfsögðu endurskoðuð ef breyting verður á afstöðu Eflingar um eðlilega og sanngjarna verkfallsvörslu af þeirra hálfu og munu þá, sem fyrr, tveir fulltrúar félagsins fá aðgang að hótelunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Búið að bola síðasta þolanda séra Gunnars úr Digraneskirkju

Búið að bola síðasta þolanda séra Gunnars úr Digraneskirkju
Fréttir
Í gær

Segir að hvorki Kópavogsbær né tryggingar vilji axla ábyrgð eftir að skólp flæddi inn á heimili fjölskyldunnar – „Ég er á kafi í skít í orðsins fyllstu“

Segir að hvorki Kópavogsbær né tryggingar vilji axla ábyrgð eftir að skólp flæddi inn á heimili fjölskyldunnar – „Ég er á kafi í skít í orðsins fyllstu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tugir íslenskra barna fá offitulyf

Tugir íslenskra barna fá offitulyf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varar konur við öfugugga í Öskjuhlíð – „Var á fullu að athafna sig“

Varar konur við öfugugga í Öskjuhlíð – „Var á fullu að athafna sig“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rannsóknarlögregla og starfsmenn tæknideildar lýstu aðkomunni í Barðavogi

Rannsóknarlögregla og starfsmenn tæknideildar lýstu aðkomunni í Barðavogi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Þessi börn eru að fá að hitta ömmu sína og afa einu sinni á ári í kannski klukkutíma“

„Þessi börn eru að fá að hitta ömmu sína og afa einu sinni á ári í kannski klukkutíma“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Díana bjó á götunni 11 ára í daglegri neyslu – „Segi stundum að ég hafi búið meðal róna og dóna“

Díana bjó á götunni 11 ára í daglegri neyslu – „Segi stundum að ég hafi búið meðal róna og dóna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðafólki komið til aðstoðar við Pétursey og á Fjarðarheiði

Ferðafólki komið til aðstoðar við Pétursey og á Fjarðarheiði