fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Atlanta bætir við sig sjö þotum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 1. október 2021 09:00

Vél frá Atlanta. Mynd:Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Atlanta bætir sjö nýjum flutningaþotum við flota sinn á næstu mánuðum. Verða þá sextán þotur í flota félagsins. Mikil eftirspurn er eftir fragtflugi og segir forstjóri félagsins að samdráttur í farþegaflugi hafi valdið skorti á flutningarými.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Baldvin Hermannssyni, forstjóra félagsins, að eftirspurn eftir fragtflugi hafi stóraukist samhliða samdrætti í farþegaflugi vegna heimsfaraldursins. Eftirspurnin hafi ekki síst aukist í flugi langdrægra breiðþotna á milli heimsálfa og því vanti meiri flutningsgetu inn í kerfið.

„Þetta hefur verið rússíbanareið síðan faraldurinn skall á. Þá vorum við að fljúga 15 vélum og vorum með miklar áætlanir um áframhaldandi nýliðun og stækkun á flotanum. Það fór allt í vaskinn í faraldrinum. Undanfarið höfum við þó byggt upp reksturinn og erum nú eingöngu með fraktvélar, alls níu 747 Boeing-fraktvélar. Eftirspurnin hefur stöðugt aukist síðustu tólf mánuði. Áður fyrr komu 65-70% af okkar tekjum úr farþegaflugi,“ er haft eftir honum.

Atlanta mun nota tvær farþegaþotur í fragtflug en þær hafa staðið óhreyfðar síðan faraldurinn skall á. Önnur þeirra hóf sig til flugs í fyrradag.

Í síðustu viku skrifaði félagið undir langtímaleigu á tveimur Boeing 747-fraktvélum og er reiknað með að þær verði teknar í notkun í janúar og febrúar. Verða fraktvélarnar þá orðnar þrettán. Baldin sagði að þess utan væri verið að ljúka samningum um rekstur á þremur Airbus 340-þotum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“