fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Ísland og átta önnur ríki reið út í Alþjóða gjaldeyrissjóðinn – Ætla að ráðleggja Rússum

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 13. september 2024 15:30

Sigurður Ingi er ekki sáttur við Kristalinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland er á meðal níu Evrópuríkja sem mótmæla ákvörðun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um að hefja aftur starfsemi í Rússlandi. Sjóðurinn eigi ekki að gefa Rússlandi ráð um hvernig eigi að efla efnahaginn og þar af leiðandi efla getu landsins til að herja á Úkraínu.

Sigurður Ingi Jóhannsson er á meðal níu fjármálaráðherra Evrópuríkja sem leggja fram kvörtunina. Hin ríkin eru Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen og Pólland.

Eftir innrás Rússa inn í Úkraínu í febrúar árið 2022 hætti Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn árlegum ráðleggingum til Rússa. En slíkar ráðleggingar veitir hann öllum öðrum aðildarríkjum.

Þann 2. september síðastliðinn tilkynnti sjóðurinn að ráðleggingarnar til Rússa myndu hefjast að nýju þann 16. september og myndi sendinefnd sjóðsins fara til Moskvu þann 1. október.

„Við lýsum yfir mikill andstöðu við allar slíkar áætlanir,“ segir í bréfi fjármálaráðherranna níu til Kristalinu Georgieva, hinnar búlgörsku framkvæmdastýru sjóðsins. Árásarríki eins og Rússland ætti ekki að fá neinar ráðleggingar frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Einnig myndi þetta draga úr trúverðugleika sjóðsins og letja ríki til þess að styðja Úkraínu í gegnum verkefnum á hans vegum. Gjafaríkin myndu frekar velja Alþjóðabankann eða Evrópubankann til þess í framtíðinni.

Þá var einnig bent á það að öll gögn sem Rússar myndu sýna fulltrúum Alþjóða gjaldeyrissjóðnum yrðu fölsuð og látið líta út eins og landið væri að standast efnahagsþvinganir Vesturlanda. Allt mat sjóðsins byggt á slíkum gögnum væri gagnslaust.

„Við hvetjum allar alþjóðlegar stofnanir, þar á meðal Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og stjórnendur hans, að halda áfram að stunda ekki starfsemi í árásarríkjum og byrja ekki samtal á ný svo lengi sem Rússar halda áfram sínu árásarstríði gegn Úkraínu,“ segir í bréfinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“