fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Pressan

Faðir tók syni sína af lífi – Elti einn þeirra eins og bráð

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 23. júní 2023 22:00

Drengirnir sem myrtir voru af föður sínum/Skjáskot Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður að nafni Chad Doerman var handtekinn í bænum Monroe Township í Ohio-ríki í Bandaríkjunum 15. júní síðastliðinn fyrir að myrða þrjá syni sína.

Segir í frétt Mirror að Doerman, sem er 32 ára gamall, hafi stillt sonum sínum upp og skotið þá til bana af stuttu færi. Þeir voru sjö, fjögurra og þriggja ára gamlir.  Einn þeirra náði að flýja en Doerman elti hann uppi nánast eins og á veiðum og náði honum.

Doerman hefur verið ákærður fyrir morðin og einnig fyrir árás á móður drengjanna.

Segir saksóknari á svæðinu þetta versta morðmál sem hann hafi upplifað á sínum starfsferli.

Doerman hefur viðurkennt að hafa skipulagt morðin í marga mánuði. Þegar lögreglan kom á staðinn sat hann í makindum á útidyratröppum heimiils fjölskyldunnar með rifil sinn við hlið sér á meðan lík sona hans lágu fyrir framan húsið.

Móðir drengjanna reyndi að koma þeim til bjargar en fékk skot í aðra höndina. Dóttir hennar úr fyrra sambandi, sem er 14 ára gömul, náði að flýja og gera nærstöddum viðvart sem hringdu á lögregluna. Að sögn hrópaði stúlkan að stjúpfaðir hennar væri að drepa alla fjölskylduna.

Doerman veitti enga mótspyrnu við handtökuna. Morðin komu mörgum nágrönnum fjölskyldunnar algjörlega í opna skjöldu en þeir höfðu ekki orðið varir við annað en að Doerman væri hændur að sonum sínum og þeim góður faðir. Þó höfðu aðrir nágrannar margsinnis orðið varir mið mikla reiði hjá Doerman sem hafi reglulega öskrað á börn sín og eiginkonu

Faðir Doerman, Keith Doerman, segist ekki skilja hvernig sonur hans skuli hafa verið fær um slíkt voðaverk. Hann telur hugsanlegt að eitthvað hafi verið á seyði í lífi Chad sem hann hafi ekki höndlað og því gengið af göflunum. Hann bíði eftir að fá leyfi til að ræða við son sinn og leita svara.

Kona sem segist vera systir móður drengjanna hefur beðið fólk að styrkja systur sína svo hún hafi efni á að greiða fyrir útför þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels

Maria lagði á ævintýralegan flótta til að geta tekið við friðarverðlaunum Nóbels
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra

Tesla olli eldsvoða og sex manna fjölskylda missti allt – Telur að kraftaverk hafi bjargað lífi þeirra
Pressan
Fyrir 6 dögum

Þeir sem heimsækja Bandaríkin þurfi að sýna samfélagsmiðlasögu sína fimm ár aftur í tímann

Þeir sem heimsækja Bandaríkin þurfi að sýna samfélagsmiðlasögu sína fimm ár aftur í tímann
Pressan
Fyrir 6 dögum

Faðir ákærður eftir að 13 ára dóttir hans ók inn á skrifstofu – „Þetta leit út eins og sprenging“

Faðir ákærður eftir að 13 ára dóttir hans ók inn á skrifstofu – „Þetta leit út eins og sprenging“