fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Reiði yfir HM boltanum – Þeir sem framleiða boltann geta aldrei keypt sér hann

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. maí 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gagnrýni hefur blossað upp á framleiðslu opinbera HM-boltans frá FIFA eftir að upplýst var að verkamenn sem framleiða boltann fá aðeins um 26 pund í vikulaun, þrátt fyrir að boltinn sé seldur á allt að 130 pund.

Um er að ræða nýja Adidas Trionda boltann, opinberan keppnisbolta Heimsmeistaramótsins, sem er dýrasti opinberi mótsbolti sem framleiddur hefur verið til þessa. Boltinn er skreyttur litum úr fánum gestgjafa mótsins, Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Samkvæmt fréttum er boltinn framleiddur í borginni Sialkot í Pakistan, þar sem framleiðandinn Forward Group greiðir hluta starfsfólks síns lágmarkslaun sem nema um 106 pundum á mánuði.

Anna Bryher, talskona samtakanna Labour Behind the Label, segir stöðuna óásættanlega.

„Það að boltarnir seljist á yfir 100 pund á meðan börn þeirra sem framleiða þá hafa ekki efni á að eignast slíkan bolta sýnir skýrt skort á ábyrgð,“ sagði hún.

Hún kallar eftir því að bæði Adidas og FIFA axli ábyrgð á framleiðslukeðju sinni og tryggi starfsfólki laun sem dugi til mannsæmandi lífs.

Forward Group hefur framleitt um tíu milljónir bolta fyrir komandi Heimsmeistaramót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Barcelona kælir Alvarez og horfir til Chelsea

Barcelona kælir Alvarez og horfir til Chelsea
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Aston Villa vann úrslitaleik Evrópudeildarinnar með sannfærandi hætti

Aston Villa vann úrslitaleik Evrópudeildarinnar með sannfærandi hætti
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Eiður Smári ræðir mjög óvænt tíðindi frá London – Hélt að fólkið væri að plotta með kjaftasögum

Eiður Smári ræðir mjög óvænt tíðindi frá London – Hélt að fólkið væri að plotta með kjaftasögum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hógvær fyrir kvöldið þrátt fyrir að vera sá sigursælasti

Hógvær fyrir kvöldið þrátt fyrir að vera sá sigursælasti